Mér finnst Svíarnir töff að neita þátttöku í Ungfrú Alheimur. Ótrúlegt hvað Svíar eru langt á undan Íslendingum sem og langflestum öðrum þjóðum í jafnréttismálum. Þar þykja t.d. fegurðarsamkeppnir hallærislegar og þess verðar að birtast í sjónvarpi og fréttatímum. Ég man aldrei eftir að hafa rekist á frétt eða aðra umfjöllun um fegurðarsamkeppni í það eina og hálfa ár sem ég bjó þar. Á Íslandi þykir það enn eftirsóknarvert að taka þátt í slíkum keppnum og veldur ekkert sérstökum taugatitringi nema hjá forhertum feministum eins og sjálfri mér. Nánast allir vita hver er Ungfrú Ísland er hverju sinni því varla er hægt að komast hjá fréttafluttningi af því hver sú "heppna" þ.e. sú sætasta er hverju sinni.
Eins og ég hef áður minnst á eru sænskir karlmenn afar metró og kann ég því illa. Ég hef ekki lagst í sérstakar rannsóknir en ég vona að ástæðan sé ekki sú að þar séu konur og karlar jöfnust í heiminum. Vona að það sé frekar í eðli Svíana að vilja vatnsgreiða vel hirt hárið, klæðast þröngum buxum og pastellitum pólóbolum heldur en að það sé fylgifiskur jafnréttis í reynd. Vona ég því að jafnréttisstuðli Svíana verði brátt náð á Íslandi svo ég geti afsannað allar kenningar um slíkar afleiðingar jafnréttis í reynd.
Bloggar | 30.5.2007 | 15:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Reiðhjólið þykir á Íslandi ekki raunhæfur ferðarmáti nema rétt svona til heilsuræktar. Það hefur berlega komið í ljós að ef maður ferðast um á hjóli þá heldur fólk er maður sé í megrun. Ég veit ekki hvað það hafa margir spurt mig síðustu daga hvort ég sé í átaki af því að ég hjóla í vinnuna. Engum virðist detta í hug að ég eigi ekki bíl og þess vegna hjóla ég, einhvern veginn verð ég að komast á milli staða. Þar sem ég er frekar á móti megrunum þykirmér afar leiðinlegt ef allir sem sjá mig spýtast um á hjólhestinum haldi að ég sé bara að hjóla til að megrast. Ef það væri þó raunin væri þetta reyndar frekar misheppnaður megrunarkúr. Einhvern veginn efast ég um að þær 8 mínútur eða svo sem það tekur að rúlla í vinnuna hafi mikil áhrif á spik.
Ég er annnars yfirleitt frekar pirruð á bílum. Ég man eftir einhverjum félagsskap Sjálfstæðisflokksdrengja sem kölluðust Vinir einkabílsins. Ef ég ætti að stofna einhver samtök væri þau Óvinir einkabílsins. Mér finnst óþolandi hvað það eru margir bílar í þessari litlu borg. Miðað við öll umferðamannvirkin í Reykjavík mætti halda að við byggjum í milljónaborg. Þegar ég ber umferðina saman við Uppsala, sem er töluvert stærri en Reykjavík, mætti halda að verið væri að bera saman Grenivík og New York og þá er Reykjavík í hlutverki Jórvíkur.
Augljós mengunaráhrif bíla finnst mér þó vera það sem gerir mig mest mótfallna þessum farartækjum. Verð þó að viðurkenna að önnur ástæða er fyrir því að mér er illa við einkabíla og alla þá umferð sem þeir skapa. Ég er í stanslausri hættu að keyrt verði á mig. Þetta hefur orðið til þess að ég hef íhugað að kaupa mér hjálm. Það er ekki pæjulegt að vera með þess háttar höfuðfat og ég sem er alltaf reynandi að vera svoleiðis. Minnkið því að keyra, þó það væri ekki nema bara til að forða mér frá hjálmahári.
Bloggar | 29.5.2007 | 20:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Vinsældarnir eru hríðfallandi svo ég held að mínir gömlu lesendur þurfi ekki að hafa áhyggjur af því að verða rakkaðir niður í kommentakerfinu.
Finninn fór í morgun svo nú er ég orðin ein á ný. Hefði ekki verið hægt að vera betri eða þakklátari gestur og fannst henni ég auðvitað besti gestgjafi í heimi. Enn á ný var þjóðremba mín styrkt af útlendingum en henni fannst Ísland fallegasta og besta land í heimi, Akureyri fallegasti bærinn og fólkið það almennilegasta. Hún hitti auðvitað næstum því bara mína vini og fjölskyldu svo það er kannski ekki skrítið að hún hafi heillast enda betra fólk varla hægt að finna.
Aðeins einu sinni skammaðist ég mín fyrir Akureyri. Ætlaði auðvitað að sýna henni næturlífið og dröslaðist því neðar í bæ en venjulega, sem sé út af Karólínu og niður á Kaffi Akureyri. Hélt að það yrði fullt af stuðlegu ungu fólki þar að dansa við Gaggó Vest og aðra slagara sem virðast vera á replay á þessum stað. Það sem við blasti var hins vegar afar sorgleg sjón. Hálftómur staður af ógæfufólki sem sat og sötraði öl með fýlusvip á vör. Í stað sætu litlu menntaskólastrákana sem eru vanir að hanga þar voru það miðaldra rússneskir sjómenn sníkjandi eld sem mest bar á. Skildi þá af hverju ég bý ekki á Akureyri.
Skelli örugglega einhverjum myndum hér inn þegar ég kem heim úr vinnunni í dag ef ég nenni að drusla mér til þess á kaffihús með þráðlausu neti. Kjallaraholan enn netlaus og Skjás eins laus. Held ég verði að eignast einhver önnur áhugamál en að glápa á sjónvarp og hanga á netinu.
Bloggar | 29.5.2007 | 14:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Það er aldeilis viðbrögðin við síðustu færslu. Fólk sem ég þekki ekki neitt að láta móðan mása og jafnvel rökræða við hvort annað á mínu bloggi. Svo sem gaman að því fyrir mig en hef heyrt kvartanir frá vinum og ættingjum sem lýst ekkert á þessa þróun og vill frekar hafa mig á gamla bloggernum svo það þori að kommenta án þess að eiga í hættu á að allt of margir ókunnugir lesi bullið í sér. Held samt að ég reyni þetta dót aðeins lengur og reyni að halda áfram að bulla um allt og ekki neitt og ekki alltaf linka mig við fréttir.
Ok! Allir sáttir?
Bloggar | 29.5.2007 | 08:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Ætla að gerast málefnaleg og blogga um mína fyrstu frétt, þ.e.a.s. með svona fínan tengil á fréttina. Þessi frétt var nú reyndar í gær svo ég er ekki efni í mikinn fréttasnáp ef þetta eru vinnubrögðin, degi eftir með fréttirnar.
Alla vega rakst ég á umfjöllun um þennan leik þar sem markmiðið er að verða góður í að nauðga á tölvuskjánum. Að sjálfsögðu finnst mér þess háttar leikur viðbjóðslegur og ótrúlegt að einhver búi til slíkt efni og þess þá heldur langi til að spila leikinn. Hins vegar finnst mér þessi umræða sem hefur skapast um þennan tiltekna leik áhugaverð þar sem í áraraðir hafa verið til leikir þar sem fólk er tekið af lífi með grimmilegum aðferðum án þess að það valdi sérstakri hneikslan. Nú þykir það meiri og alvarlegri glæpur samkvæmt lögum að drepa mann en nauðga svo mér finnst því að ef það ætti að banna leiki sem ganga út á kynferðisglæpi þyrfti líka að banna ofbeldisleiki.
Mér þykir að svona tvískinnungur sýna afar vel hversu dofin við verðum smám saman fyrir því sem er að gerast í samfélaginu ef fyrir því hefur skapast ákveðin hefð. Dæmi um þetta er auðvitað líka viðhorf til kláms. Nú þykir t.d. allt í lagi að hafa klámblöð í öllum hillum verslana en það þætti vafalaust ósmekklegt ef boðið væri upp á tímarit um hvernig væri best og skemmtilegast að limlesta fólk. Kannski ekki nákvæmlega það sama en mér finnst það þó að einhverju leiti sambærilegt.
![]() |
"Afar ósmekklegur leikur" |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 25.5.2007 | 11:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
Þar sem mér skilst að framundan sé fermingarhelgi finnst mér tími til kominn að ég tjái mig um þennan skrítna viðburð. Aðallega langar mig að tjá skoðun mína á þessari athöfn til að fólk sé viðbúið í framtíðinni þegar það ætlar að ferma börn sín og langar til að bjóða mér. Er ekki viss um að ég verði vinsæll fermingarboðsgestur eftir þessa yfirlýsingu mína.
Ég er fermd. Ég græddi fullt af pening svo ekki get ég leyft mér að vera einungis neikvæð yfir að hafa játað því að Jesús væri frelsari lífs míns fyrir 13 árum. Held ég hafi örugglega keypt mér eitthvað voða fínt fyrir peninginn. Ég man líka að aðal umræður samgelgja minna eftir að þær höfðu drukkið blóð krists (hversu sjúkt er það) snérust um hvað þær hefðu fengið í fermingargjöf. Ég minnist þess ekki að hafa heyrt eitt einasta fermingarbarn tjáð sig nokkuð um þá himnesku upplifun sem það var að játast inn í hið kristna samfélag. Ég var ekkert betri sjálf enda bara vitlaus 13 ára unglingur sem elti fjöldann án þess að efast nokkuð um hverju ég trúði eða trúði ekki. Ég var mjög spennt í veislunni sjálfri að bregða mér aðeins afsíðis til að telja góssið sem mér hafði áskotnast frá hinum og þessum ættingjum sem ég þekkti mismikið. Allir höfðu hins vegar séð sig knúna til að gefa mér, barninu, andvirði alla vega eins vinnudags.
Það að kirkjan og guðsmenn standi fyrir þessum samkomum finnst mér fyrirlitlegt. Ég hefði ekkert á móti því að börn myndu fá fermingarfræðslu og fermast (þó það ætti auðvitað að vera einhverjum árum seinna en nú). Það að halda þurfi svo stóra veislu að margir foreldrar neyðast að setja sig í skuldir, því auðvitað þarf að gera allt húsið upp, fóðra veislugesti á dýrindis veitingum, kaupa á barnið tískufatnað og skella í hárgreiðslu, fyrir það eitt að bólugrafnir unglingar með peningaglampa í augum klæði sig í hvíta kirtla og setji upp helgislepjuandlitið í eins og eina klukkustund finnst mér óskiljanlegt. Sömuleiðis að boðsgestirnir eru í raun skikkaðir til að gefa stærri upphæðir en það hefur nokkra löngun til.
Eftir að ég missti alla trú og fór að líta gagnrýnum augum á þessa sýningu sem ferming er, finnst mér einmitt mjög vandræðalegt að fara í fermingarveislur. Sem betur fer er ekki enn ætlast til að ég gefi sjálfstæða gjöf þar sem ég er enn gjaldgeng undir mömmu og pabba framlagi. Það versta finnst mér þegar ég þarf að hitta fermingarbarnið og búist er við því að ég óski því til hamingju. Í þrjósku minni get ég ekki brosað og óska þeim til hamingju með eitthvað sem mér finnst ekki vera neitt. Í staðinn reyni ég að brosa og heilsa þeim kurteisislega og læt það nægja.
Þannig að þá vitiði það. Ef þið sem lesið þetta munið ferma ykkar börn og langar til að bjóða mér er það velkomið. Get svo sem alveg gúffað í mig kranskaköku og kaffi ef því er að skipta. Vildi bara vara ykkur við að ég mun ekki láta þröngva mig til þess að gefa himinháa peningaupphæð. Ég held ég muni frekar gefa eitthvað kristilegt eins og t.d. Biblíu því ef að börnin eru að fermast á réttum forsendum ætti það auðvitað að vera hin fullkomna gjöf.
Bloggar | 24.5.2007 | 09:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Bloggar | 23.5.2007 | 12:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)