Peninga meninga

peningarÉg var að koma úr Landsbankanum og var að leggja öll mín peningamál á borðið fyrir þjónustufulltrúa svo hægt sé að meta mig m.t.t. íbúðakaupa.  Ekki eru nú mikil gögn sem fylgja mér, nánast tóm skattaskýrsla fyrir utan himinhá námslán og 1 launaseðill.  Sem sé útreikningurinn verður einhvern veginn svona; Nánast ekki neitt - 3 milljónir í námslán.  Held að penthouse í Skuggahverfinu verði ekki mín fyrsta eign.  

Fæ niðurstöðu matsins í næstu viku.  Hvers mikils virði er ég eiginlega?  Spennandi ekki satt? 


Slúðurblogg

Er einhver annar en ég komin með ógeð af fréttum af Paris Hilton?  Það mætti halda að hún væri eitthvað sérlega merkilegur pappír svona miðað við hvað allir hafa mikinn áhuga á blessaðri en ekki bara fræg fyrir að hafa "leikið" í klámmyndbandi og að vera rík.

Reyndar get ég viðurkennt það að mig langaði fyrir einhverju síðan að sjá hið heimsfræga myndband "One night in Paris" og fletti ég því upp á YouTube.  En þegar ég klikkaði á play á einu myndskeiðinu komu aðeins þau skilaboð á skjáinn að þeir sem vildu horfa á þetta myndband væru perrar og ættu að skammast sín.  Það fannst mér gott glens.  Skammaðist mín samt pínu.


Gamalmenni

Það var svo krúttleg kona í Kastljósinu í gær sem er 98 ára og hefur alltaf búið í sama húsinu á Ísafirði.  Þetta var þannig frétt að maður varð bæði sjúklega hamingjusamur og fór að hlæja upphátt en líka eitthvað svo sorglegt að tár komu fram í augun.  Þegar hún var að tala um handboltann og að strákarnir "okkar" væru svo góðir við sig og hefðu sent henni landsliðstreyju var hún svo glöð að ekki var hægt annað en að brosa með.  Mér fannst líka pínulítið sorglegt að horfa á svona gamla konu sem er farin að heyra og sjá illa og einhvern veginn orðin svo ósjálfbjarga.  Þá fór ég að hugsa um allt gamla fólkið mitt sem ég sinnti í heimaþjónustunni í Uppsala í fyrrasumar.  Margir fóru aldrei út fyrir hússins dyr og einu gestirnir vorum við sem unnum við að heimsækja þau.  Skrítnast fannst mér að fara til t.d. tveggja fyrrverandi háskólaprófessora við Uppsala háskóla sem voru orðnir spinnegal.  Annar lá í rúminu allan daginn og gerði ekki neitt nema að garga á okkur og reyna að lemja okkur.  Hinn væflaðist um íbúðina sína á náttsloppnum og hlustaði á sinfóníur.   Kannski snobb að finnast skrítnara að horfa upp á prófessora verða ósjálfbjarga gamalmenni en "venjulegt" fólk, kannski af því að mér varð ósjálfrátt hugsað til míns gamla kennara Hannes Hólmsteins með bleiu eftir einhver ár. 


Peningaplokk

Mér finnst eins og ég sé orðin styrktaraðili Flugfélags Íslands.  Á einum mánuði mun ég brátt hafa flogið fimm sinnum milli Ak og Reyk.  Og það er ekkert ókeypis að gera það.

Ég er sem sagt að fara í útskrift litlu systur frá MA þann 17. júní.  Hef traustar heimildir fyrir því að ekki sé boðið upp á hið margrómaða moðsteikta lambalæri sem var að ég tel á boðstólnum í öllum MA samkomum sem ég hef tekið þátt í.  Einhver nýjungagirni hlaupin í þá Bauta-menn.


Best í að menga?

Í dag er víst alþjóðlegur umhverfisdagur.  Ég hef nú svo sem ekki heyrt mikið um hann áður enda er ég nokkuð nýorðin umhverfisfasisti.  Íslendingar halda ekki sérstaklega upp á daginn, spurning hvort forráðamönnum okkar finnst við ekki menga nóg til að vekja sérstaka athygli á degi sem þessum. 

Íslendingar monta sig oft á þegar við á að við séum best í hinu og þessu reiknað út frá höfðatölu.  Ég hef hins vegar aldrei séð tölur um það hvað við mengum mikið miðað við þessa tölu.  Ég er viss um að við myndum skora hátt þar, vera "best" í að menga.  En þegar svoleiðis leiðinlegar tölur eru annars vegar vill enginn notast við heimskulega höfðatöluútreikninga, þá viljum við heldur notast við heildartölur, óháð íbúafjölda.  Svoleiðistölur eru okkur aldeilis í vil.  Höfðatölureikningar teljast bara góðir og gildir þegar sagt er frá því hverjir drekka mest kók og svoleiðis skemmtilegt.


mbl.is Alþjóða umhverfisdagurinn er í dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hlutverkaskipti

Nú þegar það er ný ríkisstjórn tekin til starfa eftir allt of langa setu D og B þarf maður að fara að venja sig við öðruvísi þingræðum.  Allt í einu eru þeir sem áður vörðu störf stjórnarinnar með krafti og klóm farnir að rakka hana niður og þeir sem sáu svart þegar minnst var á ríkisstjórnina finnst nú allt sem hún gerir frábært.  Mér finnst eitthvað sérlega rangt við það að sjá t.d. Valgerði Sverrisdóttur tala um svikin loforð samgönguráðherra um Vaðlaheiðargöng. Allt í einu eru þingmenn B farnir að sjá allt að hjá ríkisstjórninni en S farið að verja allan skítinn, t.d. Ingibjörg Sólrún að réttlæta stuðning Íslands við Íraksstríð.  Mér finnst þetta allt saman fremur súralískt.  Gott að hafa þó alltaf D í hlutverki almættisins og V í píslarvottsrullunni annars vissi maður ekki í hvorn fótinn ætti að stíga. 

Það er pína að gera sig fína

Djöful er pirrandi þegar maður vaknar fyrr en venjulega til að gera sig fína og slétta á sér hárið, fara svo út og lenda þar í rigningu og roki og koma til vinnu með beyglaðari lubba en fyrir sléttingu.  Skil ekki hvernig maður nennir að standa í þessu að reyna að vera pæja.

Banna meira

börnÞar sem nú hefur verið stigið það skref að banna sérstaka hegðun á kaffihúsum, þ.e. að reykja, hef ég verið að íhuga ýmislegt annað sem hægt væri að banna í kjölfarið.  Allt auðvitað í því skyni að vernda rétt vissra einstaklinga.

Nú er ég barnlaus kona og hef ekkert sérstaklega gaman að háværum, frekum ókunnugum börnum.  Þrátt fyrir það þarf ég oft að sætta mig við það að þegar ég ætla að fara á kaffihús í því skyni að eiga þar rólega stund, að allt um kring eru vælandi börn sem mér þykir af frústrerandi.  

Það er hins vegar svo að aldrei má benda á að hegðun barna á kaffihúsum sé óviðunandi og truflandi fyrir aðra gesti.  Allir eiga jú að elska litlu sakleysingjana skilyrðislaust.  Veit ég til þess að þegar foreldrar eru áminntir um að hafa hemil á börnum sínum móðgast þeir jafnvel svo mikð að þeir storma út í fússi.

Ekki vil ég þó gerast svo gróf að banna alfarið börn á kaffihúsum en mér þætti það ósköp eðlilegt að til væru staðir þar sem maður getur farið á þess fullviss að verða ekki fyrir truflunum vegna frekjukasts einhvers sakleysingjans. 

Er réttur minn til þess eitthvað minni en þeirra sem hatast við reykingar?  Ég er ekki frá því að sá pirringur sem myndast innra með mér þegar ég lendi í miklum truflunum af hendi barnafólks hafi töluverð áhrif á heilsu mína svipað og óbeinar reykingar gera.  En geðheilsan hefur svo sem aldrei verið metin til jafns við hina líkamlegu.  En það voru alla vega til reyklaus kaffihús áður en ég hef aldrei rekist á barnlaust kaffihús. 

Hef sömuleiðis fleiri hugmyndir um boð og bönn á kaffihúsum;  gelgjulaus kaffihús (flissandi og hávært lið), gamalmennalaus kaffihús (það tekur ár og öld fyrir þau að telja klinkið fyrir kaffibollanum), túristalaus kaffihús (þeir lykta oft illa undan öllu goretexinu) og svo mætti áfram telja. 


Afturheimt æska

Ég elska konuna sem vinnur í AusturRíki.  Hún hefur nú tvisvar sinnum spurt mig um skilríki þegar ég kaupi bús.  Minnugir muna eflaust að fyrir ekki svo löngu var ég talin vera móðir tvítugrar systur minnar og því gleður það mig óskaplega að ekki allir haldi mig fertuga.

Síðasti dagur rettunar

reykingarÁ morgun verður reykingafólk gert útlægt af kaffihúsum, börum og veitingahúsum.  Þar sem mér þykir skemmtilegt að anda að mér nikótíni í formi sígarettu við sérstök tilefni (sem sé þá sjaldan maður lyftir sér upp) notaði ég gærkvöldið í að draga að mér óþverran innandyra í síðasta sinn.  Á öldurhúsinu sat allt um kring fólk sem púaði eins og enginn væri morgundagurinn enda það svo sem ekki svo fjarri lagi.  Sumir voru búnir að byrgja sig upp af rettum og keðjureyktu með tár í hvarmi og kvöddu þennan góða vin sem er þó samt svo vondur.  Þó ég ætli nú ekki að gerast neinn talsmaður reykinga á ég nú samt eftir að sakna þess að geta notið þeirra þegar ég sjálf kýs svo.  Gott verður þó að sleppa við óbeinu reykingarnar þá daga sem ég kýs ekki sjálf að draga að mér nikótín með beinum hætti.  Ég er því ekki sérstaklega klökk yfir að fá aldrei aftur að reykja á almannafæri innandyra.

Ég ætla hins vegar að benda ykkur á að ekki er allt jákvætt að losna við reykinn af skemmtistöðunum.  Reykurinn er nefnilega afar góður til að fela annars konar fnyk.  Drukknu fólki fylgir nefnilega mikill óþefur.  Prumpulyktin mun nú fá að grassera um óáreitt um bari landsins.  Verið því viðbúin annars konar fýlu sem vissulega mun ekki hafa áhrif á lungnastarfsemi en engu að síður er afar hvimleið.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband