Tillsammans

tilllsammansSá í Fréttablaðinu í dag að fyrirhugað er að setja upp leikgerð af kvikmyndinni Tillsammans.  Þetta er einmitt uppáhaldsmyndin mín og sú langskemmtilegasta sem ég hef séð.  Hún fyllir mann einhverri hamingjutilfinningu og barnslegri gleði.  Hef horft á hana margoft og finnst hún alltaf jafn hressandi og brosi út að eyrum í lokaatriðinu þegar allir eru saman að spila fótbolta í snjónum.  Þeir sem ekki verða pínu glaðir við að horfa á þessa mynd eru dauðir að innan.

Er spennt að sjá leikritið og hver mun leika sæta Lasse sem er einmitt mikið að spóka sig á typpinu í myndinni.  Mæli með að fá Hilmi Snæ í hlutverkið, hann er hvort sem er búin að sýna þetta allt saman við fjölmörg tilefni.

Held að það hafi ekki verið sagt hvað leikritið átti að heita.  Saman er eitthvað svo klént.

Mun annars koma með seinni hluta af Danmerkurferð þegar ég nenni að fara á þráðlaust kaffihús eftir vinnu.  Er of upptekin af íbúðarstússi til að nenna svoleiðis.


Ma og pa

Á morgun verður allt gott.  Þá kemur björgunarsveitin frá Akureyri, klifjuð alls kyns varningi til að fylla íbúðina mína af sem og stútfull af verkviti og almennum dugnaði.  Mamma og pabbi eru sem sé á leiðinni.  Eins og mér þykir nú gaman að redda mér sjálf vantar mig stundum foreldrana góðu til að hjálpa mér við ýmsustu verkefni.  Ég kann t.d. ekki að tengja þvottavél eða setja ný ljósastæði.  Pabbi minn er einstaklega handlaginn maður og þar að auki rafvirki og getur vonandi aðstoðað við þetta.  Mamma mín er duglegasta kona í heimi og drífur alla hluti af með einu handtaki á meðan ég get dundað mér við að mála einn dyrakarm tímunum saman, þar sem ég snýst í kringum sjálfa mig, labba á málningarbletti og ber þá um alla íbúð, rek olnbogana í blauta málninguna og svona.  Hlakka líka einstaklega til að fara í IKEA með múttu og grípa einhverja sniðuga sænska muni, og vera snögg að því.

Veit ekki hvað fólk gerir sem á ekki svona góða fjölskyldu!


Stolltur íbúðareigandi

Ég á íbúð!  Keypti mér eitt stykki svoleiðis í fyrradag.  Er byrjuð að mála og svona, er ekkert spes góð í því enda nánast enga reynslu af málningarvinnu.  Er með hvítar málningarklessur í hári og á höndum og öll eitthvað stirð eftir verkið.

Get alla vega loksins upplýst, fyrir þá örfáu sem ekki vita, þá keypti ég mér risíbúð (má ekki kalla það Penthouse?) á Hverfisgötu.  Þetta er 3ja herbergja íbúð, en ógeðslega lítil.  Mjög krúttleg og gamaldags.

Verst að þetta er kannski ekkert spes hverfi, frekar sjabbí og svona.  Treysti þó á það að með innflutningi plebbana í Skuggahverfið í næsta nágrenni muni Hverfisgatan byggjast upp.  Plebbarnir munu ekkert vilja hafa eitthvert hyski í túnfætinum hjá sér og smám saman muni Hverfisgatan plebbast upp.  Þetta gæti þó verið varasöm óskhyggja því að í plebbaaugum er ég eflaust hyski; Hippi á hjóli og hef engan metnað til að verða rík. 

Bráðum verður partý í penthousinu, þá fáið þið útvöldu að sjá dýrðina.


Komin

Lenti á Keflavíkurflugvelli  árla morguns eftir einstaklega vel heppnaða ferð til Danmerkur.  Mér finnst ótrúlegt að ég hafi bara verið í  5 daga því ég fór út um allt og hitti svo marga og gerði margt. Ferðin byrjaði aðfaranótt fimmtudagsins en við Stína flugum út saman ásamt Eiði  Smára og Sveppa.  Þeir voru reyndar á fyrsta farrými og við í almúga farrýminu svo við bonduðum ekki sem skyldi.  En merkilegt nokk, þykir mér afar hughreystandi að hafa einhvern frægan með mér í flugvél því það þykir mér minnka líkur á flugslysi.  Þessi tilfinning mín er að engu rökrétt en engu að síður líður mér alltaf betur að sjá frægt fólk í flugvélinni.  En sem sé komumst við heilar til Kaupmannahafnar en þar hittum við Sólrúnu sem flaug frá London.  Á einni myndinni má sjá er hún tekur gleði stökk þegar hún sér okkur undir klukkunni góðu á Hovedbanegaard.  Við röltum svo um  Strikið og fengum okkur Tuborg. Seinni partinn tókum við Sólrún lestina til  Århus þar sem við heimsóttum þau Kristrúnu  og Frank sem tóku höfðinglega á móti okkur.  Kíktum svo aðeins á lífið í Århus sem var stórfínt, þó við höfum ekki blandað mikið geði við innfædda, nema Frank auðvitað.  Ég og Sólrún deildum svo dýrindis vindsæng og sváfum þar eins og englar í 2 nætur og má sjá Sólrúnu litlu  sofandi hér á mynd.  Sumir eru bestir þegar þeir sofa... aðrir ekki.  Áttum svo góðan föstudag í sól og blíðu og röltum um borgina.  Það hefur verið ömurlegt veður í allt sumar í Danmörku en þegar við vorum lentar tók við bongóblíða.

Fórum svo í brúðkaup á laugardaginn en kem  með myndir og söguna í annarri færslu, fer allt í fokk þegar ég set svona margar myndir í einu.Danmörk 004Danmörk 008Danmörk 012Danmörk 013Danmörk 017Danmörk 022Danmörk 027Danmörk 029Danmörk 031


Farin

dkFarin til Danmerkur.

Kem einhvern tíma aftur.

 


Brúðkaup

Nú er ég að fara til Danmerkur aðfaranótt fimmtudags.  Hún Dís litla er að fara að gifta sig þar á laugardaginn, fyrst minna vinkvenna.  Hún eignaðist líka barn á undan öllum öðrum og samt er hún yngst af mínum vinkonum. 

Ég hef aldrei farið í brúðkaup áður, nema mömmu og pabba þegar ég var skírð í leiðinni og man því ekki neitt.  Svo virðist sem enginn vilji giftast fólki sem ég þekki.  Merkilegt.  Vil frekar meina að fólkið sem ég þekki vilji sjálft ekki giftast neinum, það hljómar betur.

Ég er fyrir löngu búin að fjárfesta í pæjukjól fyrir viðburðinn.  Þetta er fremur efnislítil pjatla (án þess að vera eitthvað sjoppuleg samt) þannig að ég bjóst við að vera þarna í bongóblíðu.  Nú lítur spáin svona út; 

 

SPÁ: Kaupmannahöfn

þri. 10.7.

skyjad.gif
skyjad.gif
18° 
12° 
5 m/s 

mið. 11.7.

rigning.gif
rigning.gif
13° 
12° 
6 m/s 

fim. 12.7.

rigning.gif
rigning.gif
14° 
12° 
7 m/s 

fös. 13.7.

rigning.gif
rigning.gif
17° 
12° 
5 m/s 

lau. 14.7.

rigning.gif
rigning.gif
19° 
13° 
6 m/s 

sun. 15.7.

lettskyjad.gif
lettskyjad.gif
21° 
14° 
7 m/s 

 

 

 

 

Ætla að henda því fram að þetta sé bull og vona það besta. 

 


Útilega

Þingvellir (6)Þingvellir (13)Þingvellir (26)Þingvellir (29)Þingvellir (30)Þingvellir (32)Þingvellir (46)Þingvellir (53)Enn ein helgin að verða búin.  Við drifum okkur til Þingvalla, slógum þar upp kúlutjöldunum okkar innan um öll fínu hjólhýsin og tjaldvagnana, drukkum öl, ræddum málin, hlógum, fórum í labbitúra, vorum sakaðar um dólgslæti, ég varð fyrir kríuárás, Stína  fann upp hippabúrka (sjá mynd), urðum fyrir mikilli ásókn mýflugna (sbr. uppfinningu búrkans), hittum hressa gamlingja í Kívanisklúbbi sem vildi endilega fá okkur í partý á laugardagskvöldinu, og ýmislegt fleira. 

 Næsta helgi Danmörk og strönd.  

Lífið er einstaklega hressandi þetta sumarið :) 

Þingvellir (55)


Drullupollurinn Hróarskelda

hróarskÍ nokkurn tíma nú fyrr á þessu ári var ég ákveðin í því að fara á Hróarskeldu í sumar.  Þessa ákvörðun tók ég þrátt fyrir það að eldri systir mín hafi frussað af hneikslan þegar ég tilkynnti um þessa ákvörðun mína, því ég væri jú svo gömul.

Eftir að hafa séð drullupollinn þar í fréttunum í gær, þar sem met hefur verið slegið í bleytu og leðju, þá er ég óendanlega þakklát fyrir að hafa hætt við þau plön mín.  Sé mig fyrir mér illa pirraða, blauta í fæturnar, skríða út úr blautu tjaldinu, fara í blautu fötin mín til þess eins að blotna enn þá meira.

Kannski hafði systir rétt fyrir sér, ég er kannski bara allt of gömul fyrir svona lagað. 

Er nú reyndar að fara til Danmerkur eftir tæpa viku.  En þar er ég ekkert að fara að taka þátt í unglingaskemmtun heldur að fara í brúðkaup.  Það er víst voðalega fullorðins. 

 

Ed:  Skipti um mynd, fannst hin of fansí fyrir stemninguna sem þarna ríkir núna. 


Að vera töff eða ekki töff

Nú höfum við öll mismunandi skilning á því hvað er töff og hvað er það alls ekki. Þetta kemur líklegast með uppeldinu.  Ég reyni nú að vera umburðarlynd og ekki dæma fólk en á oft erfitt með mig. 

T.d. þegar ég var að hjóla á Laugarveginum heim úr Bónus í gær (sem mér finnst t.d. mjög töff en örugglega ekki öllum), var á undan mér Honda Civic.  Allir muna nú eftir svoleiðis, það var voða gæjalegt að eiga svoleiðis bíl á rúntinum á Akureyri hér í denn.  Honda Civic gæjar voru sérstök tegund sem þótti svo sem ekki sérlega eftirsóknarverð á mínum bæ, en þó hjá einhverjum.  Ég giska á að bílstjóri Hondunar hafi verið á að giska rúmlega þrítugur.  Aðeins eldri heldur en Civic gaurarnir í gamla daga.  Hann var með há kollvik og nokkuð bústinn.  Hann var líka með rúðurnar niðri og Eminem í botni og gelgjulagið "Shake that ass for me" hljómaði um allan Laugarveginn.  

Ég fór þá að velta því fyrir mér hvort honum finnist hann fáránlega töff?  Og eru einhverjar pæjur sem finnst þetta töff gæji.  Hugsa þær kannski með sér að þetta sé nú meira en kúl gæji sem lætur aldurinn ekki stoppa sig í að njóta lífsins og hlusta á "góða mússík í flottum bíl"? 

 Maður spyr sig...


Smáauglýsingar

Ég ætla bara svona að athuga hvort eitthvert ykkar sem hingað rata búi svo vel að eiga aukaískáp sem ykkur langar voðalega mikið að losna við.  Mér er nokk sama hvernig gripurinn lítur út nema að hann þarf að virka og helst að hafa frystihólf því mér þykir gott að borða ís.  Gott væri að hann væri ekki mjög stór og þungur því ég bý enn að meiðslum eftir flutninga á helvítis þvottavélinni.

Áhugasamir um gjafir á ísskápum (gæti jafnvel borgað nokkra þúsundkalla fyrir), vinsamlega skrifið mér á anna.th.jonasdottir@reykjavik.is


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband