Fór á tónleika í geir á Grand Rokk sem karlahópur Feministafélags Íslands stóð fyrir. Tónleikarnir voru haldnir til að vekja upp umræður um nauðganir og voru frjáls framlög til Stigamóta. Ótrúlega gott framtak og skemmtilegt að heyra stráka tala um þetta mál og taka þar með ábyrgðina af okkur kvenfólkinu. Það er óþolandi þegar reynt er að útskýra af hverju þessari eða hinni er nauðgað í stað þess að finna svar við því af hverju þessi eða hinni nauðgi. T.d. þegar sagt er að konur verði að passa sig voðalega vel svo þær lendi ekki í nauðgun. Mér finnst t.d. óþolandi þegar fólk er eitthvað að æsa sig yfir því að ég labbi ein heim til mín á nóttinni úr bænum. Að það bjóði hættunni heim. Ég á þann rétt að geta labbað sjálf heim ef ég vil og á ekki að láta fólk hræða mig til annars. Ég neita að lifa lífi mínu eftir einhverjum ógeðslegum körlum sem nauðga konum sér til skemmtunar. Og ég ætla að líka að klæða mig dræsulega þegar mig langar til. Hah!
Þetta voru fínir tónleikar en við gáfumst þó upp áður en hittara hljómsveitin Sprengjuhöllin steig á svið. Þarna var nefnilega viðbjóðslega troðið og svo skemmtilega vildi til að einhverjar amerískar gellur sátu á næsta borði og töluðu ógeðslega hátt allan tímann. Fólk var svona að sussa á þær annað slagið, en þær létu ekki segjast. Ein þeirra kom samt með skemmtilegt komment þegar Lay Low var að spila. Hún sagði með miklum amerískum hreim; Is this like Björk in the early 90s?. Hmmm, nei.
Bloggar | 2.8.2007 | 09:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
"Splash Partý @ Capone/1929 um Verslunnarmannahelgina á Akureyri ;) Síðast (Á bíladögum) mættu 1,000 manns og var ÖFLUGA stemmningin líka. Eins og þú sérð lesandi góður þá bíður Agent.is þér bestu dagskrána um verslunamannahelgina sem völ er á ;) "
Frábært! En hvað ég er glöð að ég sé að fara til Akureyrar um helgina. Froðupartý og góð stemning. Ætli það sé ekki einhver blautbolakeppni sem hægt er að skrá sig í?
Bloggar | 1.8.2007 | 13:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ónei! Álagningarskráin orðin opinber og allir munu þá vita hvað ég er sjúklega rík. Vandræðalegt maður.
Bloggar | 31.7.2007 | 13:13 (breytt kl. 13:19) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Það er greinilegt að ég er flutt í gettóið. Þegar ég ætlaði að bregða mér á bak hjólhesti mínum var framhjólið punkterað. Það var svo flatt að það leikur enginn vafi á því að einhver hefur stungið í dekkið. Ég þurfti því að skunda í flýti í vinnuna sem tekur mig tæpan hálftíma. Nennti ekki að tékka á strætó, held maður sé fljótari að labba, hann kemur svo sjaldan og svo þarf maður að eiga akkurat fyrir fargjaldinu. Kom því of seint í vinnuna í fyrsta skiptið. Vona að ég verði ekki rekin.
Bloggar | 31.7.2007 | 09:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Bloggar | 30.7.2007 | 08:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
Til hamingju Akureyringar með að vera orðnir 17 þúsund. Tími til kominn. Þetta hefur verið ansi hægt stækkandi bæjarfélag en ég man þá tíð þegar Akureyri var stærra bæjarfélag en Hafnarfjörður. Góðir tímar! Svo stoppaði allt og við vorum föst í 15 þúsundunum og allir fluttu í Hafnarfjörð.
Guði sé lof fyrir Pólverjana!
Bloggar | 27.7.2007 | 13:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Er að hugsa um að halda innflutningspartý helgina eftir versló. Þið ykkar sem haldið að ykkur verði boðið, takið helgina frá. Hef ekki ákveðið hvort kvöldið, kemur í ljós síðar.
Ætla annars að fara til Akureyrar um verslunarmannahelgina. Hef aldrei farið neitt um þessa helgi, nema kannski í útilegu með pabba og mömmu á yngri árum. Ég hef því aldrei upplifað umferðina sem ku vera þessa helgi á þjóðvegum landsins. Hlakka ekkert sérlega til að keyra eftir vinnu á föstudegi, hlýtur að verða hell.
Annars er það aldeilis skemmtilegt að fara í fyrsta skiptið á ,,útihátíð" á gamalsaldri. Hef nú eiginlega alltaf verið á Akureyri um þessa helgi en þá hef ég líka búið þar, svo það telst ekki með. Verð heldur ekki í tjaldi, býst við að foreldrar mínir muni veita mér húsaskjól.
Á svo ekki einhver foreldra sem fara úr bænum þessa helgi og býður í partí?
Bloggar | 27.7.2007 | 11:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fór á Kaffi Hljómalind í gærkvöldi á tónleika. Þetta voru einhver ultimate krútt sem voru að spila, frá Frakklandi og Kanada held ég. Þau spiluðu á voða flippuð hljóðfæri og voru almennt bara mjög flippuð hvort sem var í klæðaburði eða framkomu. Þetta var samt voða fyndið og skemmtilegt.
Nema hvað. Aldrei hef ég séð jafn marga hippa samankomna, nema þá kannski á ferð minni um Indland þar sem hvítu ferðamennirnir voru flestir eins og komnir beint frá Woodstock. Þarna voru allir strákarnir með sítt hár og í lufsubolum, og stelpurnar í alls kyns sérkennilegum múdderingum. Ekki myndi ég segja að klæðaburður minn sé mjög stífur eða litlaus en þarna leið mér eins og einhverri snobbhænu þar sem ég hafði farið í fínni fötin og greitt á mér hárið. Eina leiðin til að reyna að falla inn í hópinn var að vefja upp á hárlokkana og nudda þá upp og niður og reyna að mynda dreadlocks í flýti. Nennti þó ekkert að vera að standa í því. En hippar eru friðsamlegasta fólk og vænstu skinn svo ekki varð ég fyrir aðkasti þó ég væri með hreint og greitt hár og í nýjum kjól.
Bloggar | 26.7.2007 | 08:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fyrst maður er byrjaði á þessari myndamaníu læt ég hér flakka með myndir frá því deginum eftir. Öllum gestunum var boðið í brunch með beikoni og tilheyrandi næsta dag. Sérlega hressandi eftir glauminn og gleðina nóttina áður. Við vorum síðan þarna fram eftir degi og nutum veðursins. Þess má geta að þetta var hálfgert reunion fyrir okkur þar sem Sólrún býr í London, Gunna í París, Dís í Kaupmannahöfn og svo við Stína í Reykjavík.
Getraun: Hvað þýðir "færist" á dönsku? (Sólrún glögga áttaði sig fljótt á því en við Stína, sem bjuggum töluvert lengur í Danmörku en hún, vorum ekki eins skarpar)
Bloggar | 25.7.2007 | 11:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Nennti ekki að bíða með að komast á netlaust kaffihús með mína tölvu til að setja hér inn mínar myndir. Set því bara Sólrúnar myndir í staðinn.
Brúðkaup Dísar og Noah var haldið á Sjællands Odde í svona sumarbústaðarhverfi einhverju. Þetta var við strönd og voða fallegt þarna í kring. Þau höfðu leigt risastórt hús þar sem allir gestirnir gistu. Athöfnin var haldin úti, uppi á hól þarna hjá, með útsýni yfir hafið. Þetta var ekki trúarleg athöfn svo hún var alveg laus við alla helgislepju. Stína fína spilaði við athöfnina. Akkurat meðan athöfnin var kom smá rok og varð skýjað en fljótlega eftir að henni var lokið brast á með blíðu. Júníus, sonur brúðarparsins var voðalega hamingjusamur þegar mamma hans og pabbi höfðu loksins verið pússuð saman. Líklega fannst honum vandræðalegt að eiga foreldra sem lifa í synd. Dís var svo fallegasta brúður sem ég hef séð eins og myndirnar bera með sér. Svo borðuðum við eins og 2 heil svín og höfuð þeirra má sjá hér að ofan. Smart!
Myndirnar sem teknar voru hér á eftir vil ég helst ekkert vera að setja inn, bara vandræðalegt fyrir mig og mína. Það var allavega stuð fram eftir allri nóttu og íslensku gestirnir auðvitað síðastir að sofa.
Yndislegur dagur í alla staði og hvet ég hina vini mína að drífa sig að gifta sig, bara svo ég geti komist í svona skemmtilega veislu aftur.
Bloggar | 25.7.2007 | 09:29 (breytt kl. 09:33) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)