![]() |
Íslenskar konur nota 45 þúsund króna andlitskrem |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 25.10.2007 | 11:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Elska heimildaþættina á Rúv á mánudögum sem fjalla um mat. Ég þoli nefnilega ekki svona mýtur um að ef maður éti þetta eða hitt verði skrokkurinn allt annar. Það hlakkar því oft í mér þegar ég sé að ýmislegt af þessu dóti er rangt sem fólk hefur áður fullyrt að sé dagsatt. Eins og þetta að fólk eigi að drekka fullt af vatni til að fá fallega húð; kjaftæði. Afeitrun sé afskaplega góð fyrir kroppinn; kjaftæði. Fólk er feitt af því að það er með svo hæg efnaskipti; kjaftæði, þú borðar bara eins og svín!
Gæðastöff sem auðvelt er að mæla með.
Bloggar | 23.10.2007 | 16:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Helgin búin og ég búin á því. Búið að vera nóg að gera. Airwaves, afmæli, gestir, köttur í aðgerð og svona. Nóg alla vega til að ég sé lúin.
Airwaves var fínt, sá allnokkrar hljómsveitir og beið alls ekkert svo mikið í röðum. Margt skemmtilegt sem ég sá en án nokkurs vafa mesta stuðið á öllum á Bloc Party. Djöful er ég samt fegin að vera nú laus við inngönguarmbandið sem maður þurfti að vera með þessa daga. Bara ljótt, óþægilegt og subbulegt. Fór alls ekki vel við tónleikaátfittin mín.
Bloggar | 23.10.2007 | 13:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þá er maður orðinn árinu eldri, nokkrum hrukkum ríkari en nokkrum æskublóma fátækari. Ég get alveg viðurkennt það að mér þykir ekkert skemmtilegt að eldast. Mig langar alltaf að vera ung. Ef ég væri rík og aðeins firrtari væri ég örugglega búin að fá mér bótox.
Áttaði mig reyndar á því í gærkvöldi að það er ekki allt fengið með æskunni. Þegar ég og litlu systkinin þræddum Airwaves staðinu í gærkvöldi var 18 ára bróðir minn hálfgerð taugahrúga yfir því að vera stoppaður í dyrunum. Þau voru búin að undirbúa leikþátt þar sem þau ætluðu að þykjast vera tvíburar en hann hefði gleymt skilríkjunum. Þá rifjaðist upp fyrir mér það taugastríð sem maður átti í á yngri árum yfir því að komast inn á staði. Ég reyndi einu sinni að komast í Sjallann áður en ég varð 18 ára, var auðvitað stoppuð í dyrunum og gat reyndar að suðað mér inn þar sem aðeins 2 mánuðir voru í afmælið, en með þeim orðum að ég ætti aldrei að gera þetta aftur. Það sama var um Karólínu, hve maður hataðist við Vigni eigandann. Fannst hann ógeðslega ósanngjarn að leyfa manni ekki að vera fullur 17 ára á staðnum hans. Þvílíkt óréttlæti sem manni fannst maður verða fyrir. Ofsóknir nánanst.
Nú má ég hins vegar allt og það er alls ekki svo leiðinlegt!
Bloggar | 18.10.2007 | 10:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)

Bloggar | 17.10.2007 | 12:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Bloggar | 15.10.2007 | 11:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Bloggar | 12.10.2007 | 11:31 (breytt kl. 11:31) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ég er kannski ógeðslega vond en mér finnst sjúklega gaman þegar Sjálfstæðisflokkurinn er orðinn óvinsæli krakkinn sem allir hinir krakkarnir leggja í einelti. Pirrandi samt hvað Framsóknarflokkurinn er alltaf vinsælasti krakkinn þó hann sé svona leiðinlegur.
Sem borgarstarfsmanni finnst mér líka afar ánægjulegt að hafa ekki lengur Sjálfstæðismann sem æðsta yfirmann, mun skemmtilegra að vinna fyrir myndarlegan hrokkinhærðan jafnaðarmann.
Bloggar | 11.10.2007 | 16:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Bloggar | 10.10.2007 | 12:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Ég fór í Kringluna á laugardaginn. Fór snemma til að lenda ekki í einhverri allsherjar geðveiki sem hefði vond áhrif á geðheilsu mína. Stóð mig bara nokkuð vel og fann varla til nokkurs pirrings og náði meira að segja að gera þar nokkuð góð kaup.
Ekki fór það þó þannig að ekki gætti nokkurs pirrings. Hvað er með þessar hurðir til að komast inn í Kringluna. Af hverju getur maður ekki bara labbað beint inn? Í staðinn þarf maður að fara inn í einhverja snúningshurð og labba hálfhring á hraða snigilsins. Mér líður alltaf eins og bjána þar sem ég mjakast áfram hægt og rólega áfram inn í musteri mammons. Er skapi næst að ryðjast í gegnum neyðarinnganginn til að sleppa þessari vitleysu. En hvað finnst ykkur, er ég að gera úlfalda úr mýflugu?
Bloggar | 8.10.2007 | 10:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)