Ég fór í Kringluna á laugardaginn. Fór snemma til að lenda ekki í einhverri allsherjar geðveiki sem hefði vond áhrif á geðheilsu mína. Stóð mig bara nokkuð vel og fann varla til nokkurs pirrings og náði meira að segja að gera þar nokkuð góð kaup.
Ekki fór það þó þannig að ekki gætti nokkurs pirrings. Hvað er með þessar hurðir til að komast inn í Kringluna. Af hverju getur maður ekki bara labbað beint inn? Í staðinn þarf maður að fara inn í einhverja snúningshurð og labba hálfhring á hraða snigilsins. Mér líður alltaf eins og bjána þar sem ég mjakast áfram hægt og rólega áfram inn í musteri mammons. Er skapi næst að ryðjast í gegnum neyðarinnganginn til að sleppa þessari vitleysu. En hvað finnst ykkur, er ég að gera úlfalda úr mýflugu?
Athugasemdir
Skil þig mjög vel. Finnst það ættu að vera dyr fyrir fólk sem nennir ekki að drolla
Þorgerður (IP-tala skráð) 8.10.2007 kl. 10:38
Gott að heyra að ég er ekki ein!
Anna Þorbjörg Jónasdóttir, 8.10.2007 kl. 11:21
Hjartanlega sammála! Og ég tala nú ekki um þegar maður þarf að horfa upp á föður sinn ringlaðan eins og háaldra mann, þegar hann áttar sig ekki á hvar hann fer út, út af öllu þessu gleri í allar áttir þegar hann er að flýta sér inn.
Stína (IP-tala skráð) 8.10.2007 kl. 16:45
Tetta er bara eins og hringtorgin,ekkert mál.............
En veit ad tetta er vandamál fyrir suma, svo sem fødur minn og ekki er gaman er hjólid hættir allt í einu ad snúast og madur bídur bara eftir ad komast inn.
Svipad og er rúllistiginn kom í KEA í gamla daga,tad voru margir er ekki
tordu í tetta hryllingstæki.
Frida frænka (IP-tala skráð) 9.10.2007 kl. 09:47
hvernig væri að hafa bara svona gardinu fyrir...jafnvel svona hansa gardínu sem maður þyrfti að toga í spotta til að opna. Eða stóra bílhurð. Allt annað en þetta hring drasl. Bestu hringhurðirnar eru þó þær þar sem bara einn maður kemst fyrir í einu. Svo stendur það hvergi þegar maður er á leið um þær að hvert hólf sé einungis ætlað einni manneskju, þá reyni gjarnan tveir að fara inn í hvern bás og reka fæturnar utan í hurðina þannig að hún er sífellt að stoppa. Snilldin við það er líka að yfirleitt er venjuleg hurð við hlið hringhurðarinnar sem mun þægilegra er að ganga um. Þá væri einnig hægt að hugsa sér að fólk gæti orðið sér út um "kringlu lykilinn", en þá væri inngangurinn eins og svona bílskúrshurð með opnara, sem myndi opnast þegar maður beitti hurðaropnaranum. Það er margt í þessu.
Jói (IP-tala skráð) 10.10.2007 kl. 22:27
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.