Hann litli bróðir minn, hann Egill Logi, á afmæli í dag. Hann er reyndar löngu hættur að vera lítill og töluvert langt síðan hann varð tveimur eða ekki þremur höfðum hærri en ég. Í dag er hann orðinn fullorðinn og 18 ára.
Egill er svo heppinn að eiga þrjár eldri systur. Ég man það þegar hann var í maganum á mömmu og læknirinn sagði að hann ætti að verða stelpa. Það þótti mér nú skemmtilegt. Að eignast litla systur fannst mér töluvert meira spennandi en að eignast lítinn bróður. Þegar út kom strákur glöddust allir, nema ég. Það kom síðar í ljós að litlir strákar eru líka skemmtilegir og það var nú ágætt að brjóta þetta stelpnaveldi aðeins upp. Ég held líka að Egill sé heppinn. Því það gerir hverjum karlmanni gott að alast upp með systrum. Við höfum kennt honum vel.
Til hamingju með daginn litli bró!
Athugasemdir
"...varð tveimur eða ekki þremur höfðum hærri en ég"
Það er nú ekki allir með jafn stóran haus.
Takk takk!
Egill bró (IP-tala skráð) 5.10.2007 kl. 15:46
Ef tú sérd tetta Egill minn,tá rétt mistiir tú af mér.Ég hringdi heim til tin
ádan og var virkilega búin ad æfa æfmælisønginn,en tá svaradi bara
mútta og tú ný farinn út.Heppinn måske?????
Tad var ekki alveg létt fyrir tig ad alast upp med trem frekum
systrum,eda hvad segir tú Anna mín nvid tví?
Tad var nú gaman ad fá símtal ad srákurinn væri fæddur og
ekstra gaman ad tar væri komid nafni Egils Jónasonar og reidhest
hans loga,Bádir ættadadir frá Helgastødum. Tetta er svona adeins væmni hjá mér,en ég gleymi aldrey er ég fékk símtalid ad Egill væri strákur.Tó svo ad tid stúlkur séud yndi og tá kom hann tetta litla tip óvart og er búin ad vera gledigjafi alla s´na t´d,eins og og tid systur líka
Frida frænka (IP-tala skráð) 5.10.2007 kl. 20:39
Veistu hvað ég var að uppgötva Anna? Ég lá með mömmu þinni á fæðingardeildinni. Ég 17 ára stelpubjáni, ég man þegar mamma þín var að tala um að hún ætti þrjár dætur og henni hefði verið sagt að hún gengi með fjórðu stelpuna, en svo kom strákur. Man hvað mér fannst þetta frábært fyrir hana :) Hef stundum rifjað þetta upp, veit ekki af hverju, en þegar þú sagðir þessa sögu hérna núna, þá man ég hvernig þessi kona sem ég er að tala um leit út, og það er hún móðir þín. Og ég sem var að vinna með henni en fattaði aldrei að hún væri þessi kona sem mér varð stundum hugsað til í gegnum árin! Og þetta passar alveg, minn er fæddur 30. september og ég lá inni í 10 daga.
Skilaðu kveðju til mömmu þinnar og segðu henni endilega þessa snilldarsögu :)
Þorgerður (IP-tala skráð) 5.10.2007 kl. 21:40
ja Anna mín, ég man enn svipinn á þér þegar ég kom í skólan til þín alveg svífandi af gleði yfir að stelpan sem ég var að fara að taka á móti var svo strákur eftir allt saman(einsog það hafi eitthvað skift öllu máli).en kom öllum öðrum skemmtilega á óvart.en þú varst bara fúl og ekkert glöð.en það var nú fljótt að breytast enda drengurinn afburða yndislegur einsog reyndar systur hans.og reyndar allt hans fólk haha.knús og vona að þið hafið það gott.Glóa gamla.
Eygló Egilsdóttir (IP-tala skráð) 6.10.2007 kl. 16:44
En fyndið Þorgerður, segi múttu þessa sögu!
Man það líka að það varst þú sem komst í skólann til að færa mér þessi "sorgartíðindi" Eygló, að stelpan væri strákur. Úff, það eru orðin 18 ár síðar, finnst eins og það hafi gerst í gær. Greinilega orðin gömul sjálf
Anna Þorbjörg Jónasdóttir, 8.10.2007 kl. 08:28
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.