Blóð

blóðNú gengur þetta ekki lengur.  Nú verð ég að fara í Blóðbankann og gefa smá slettu af blóði.  Er búin að humma þetta af mér allt of lengi.  Hef tvisvar reynt en ekki getað.  Í fyrra skiptið var ég soddan písl og of blóðlítil og í seinna skiptið hafði ég verið á Indlandi og þótti eitthvað menguð.  Ég varð svo móðguð í seinna skiptið því þeir voru þá þegar búnir að taka blóðprufu áður en hægt var að drulla því út úr sér að ferðalangar væru ekki boðlegir blóðgjafar.  Er ekki spennt fyrir sprautum og fannst þetta því óþarfa pína.

En nú er hins vegar engin afsökun lengur.  Nú læt ég pumpa úr mér hvern blóðdroða sem ég á aflögu.  Hvet alla að gera slíkt hið sama, held að það sé alveg stungunar virði.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Heyrðu, ég kem með! Alla vega að tékka hvort ég megi, (var eitthvað járnlítil áður fyrr). Maður er aldeilis búinn að sjá það svart á hvítu hvað blóðgjafir eru mikilvægar, spáðu í það að þeir 40 lítrar sem Jón þurfti eru 160 BLÓÐGJAFIR!!!!! Þannig að án blóðbankans og góðu blóðgjafanna væri hann varla á lífi! Væri ekki huggulegt að fara að gefa blóð saman:)

Stína (IP-tala skráð) 3.10.2007 kl. 15:51

2 Smámynd: Anna Þorbjörg Jónasdóttir

Ég hélt nú samt að það væri tappað af manni 1/2 líter í einu, gera það þá ekki 80 manns? En nógu margir þó.

Ætla í blóðprufu e. vinnu á morgun, en það er opið til 19 á fimmtudögum.  Svo þarf maður að bíða í 2 vikur áður en maður má gefa þetta gums.  Þú kemur þá með um kl. 5 á morgun. ókei?!?

Anna Þorbjörg Jónasdóttir, 3.10.2007 kl. 15:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband