Allt fór á hvolf í gær yfir þessum fíkniefnum í skútunni á Fáskrúðsfirði. Fréttatímar beggja stöðva notuðu hálfan þáttinn í þetta mál. Skemmtilegasta innslagið þótti mér þó viðtölin við heimamenn. Spurðir voru um 6 manns hvernig þeim hafi orðið um þegar þau heyrðu af þessu. Veit ekki hvort til séu einhver góð svör við svona spurningu en fannst fyndið þegar míkrafóninum var troðið upp í fólk sem sagði eitthvað; mér var bara voða brugðið sko; þetta er alveg svakalegt; þetta er nú ekki góð kynning fyrir staðinn; og börnin hlaupandi hérna um og fleiri góðir punktar. Þeir sem heyrðu vita hvað ég meina. Veit svo sem ekki hvað börnunum hefði átt að verða meint af, held ekkert skútumennirnir hafi ætlað að selja þeim góssið. Né held ég að Fáskrúðsfirði verði eitthvað sérlega meint af þessu, held ekkert að ef einhver ætlar í ferðalag þangað að hann hugsi með sér; nei, þar er allt fljótandi í fíkniefnum og dópsalar á hverju horni.
En svo sem gaman að því að fá smá spennandi fréttir annað slagið, svona til að hressa upp á fréttatímana. Alla vega skemmtilegri fréttir heldur en Grímseyjarferjuhelvítið.
Athugasemdir
Ohhh já! Ég var alveg búin að ná því sem gerðist eftir fyrstu 10 mínúturnar, en þau bara héldu áfram og áfram að velta sér upp úr þessu, já ég náði því að þetta var rosa mikið dóp og já ég skil að þetta var stórkostleg samvinna við erlendar lögreglusveitir. Það þarf ekki að segja mér það aftur og aftur, ertu svo að segja mér að þeir hafi farið að taka viðtöl við hina og þessa sem komu málinu ekkert við, það hlýtur að hafa verið boðið upp á það löngu eftir að mér var nóg boðið.
Sólrún (IP-tala skráð) 25.9.2007 kl. 00:56
Vona að Pizza Pronto hafi verið að standa sig í gær!
Anna Þorbjörg Jónasdóttir, 25.9.2007 kl. 08:28
Sveittar pizzusneiðar standa alltaf fyrir sínu!
Sólrún (IP-tala skráð) 25.9.2007 kl. 11:27
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.