Mánudagur

Er orðin allt of löt við þetta bloggfyrirbæri.  Nýja brumið farið af þessu og svona.  Átti annars góða helgi með fjölskyldunni.  Eftir að hafa jafnað mig eftir starfsdaginn þ.e.a.s.  Ansi hreint hresst starfsfólk í Þjónustumiðstöðinni í Vesturbæ.  Þess ber þó að geta að þetta var vinnuferð og við héngum ekki bara í heita pottinum allan daginn neitt, bara um kvöldið og nóttina.

Foreldrum mínum leist annars vel á nýja barnabarnið, þ.e. köttinn.  Enda verða þau að láta kött sér að góðu þar sem einhver bið verður á alvöru barnabörnum.  Eins og börnum sæmir fékk hún gestastæla og varð ofvirk og hljóp um allt. 

Æi, nenni ekki meir, ætla að koma mér út í rigninguna og hjóla heim á leið.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Afhverju þurftirðu að bæta sigga við bloggvinalistann þinn!? Þú varst komið með svo álitlegt safn af mönnum sem byrjuðu á B. Hefðir jafnvel getað verið eina gellan í bloggheimum sem státaði af slíku safni! 

Bjarki Þór Baldvinsson (IP-tala skráð) 17.9.2007 kl. 17:40

2 Smámynd: Anna Þorbjörg Jónasdóttir

Var lengi að melta þetta með Sigga, hvort ég ætti að hleypa honum inn.  Ákvað svo að aumka mér yfir hann.  Annars ekki amalegt tenglasafn af strákum hérna hjá mér

Anna Þorbjörg Jónasdóttir, 18.9.2007 kl. 08:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband