Þá er maður á leiðinni út úr bænum með vinnunni. Það verður starfsdagur hjá okkur en við munum verða yfir nótt. Smá glens og gaman er þó einnig fyrirhugað í kvöld. Ég fór því í ÁTVR (ekki spurð um skilríki :( ) í gær og keypti dömulega litla flöskubjóra til að hafa með. Leið eins og versta róna þegar ég hjólaði með þá klingjandi í körfunni klukkan 8 í morgun á leið til vinnu. Mætti einmitt fyrrum félagsmálaráðherra á Austurvelli sem gaf mér hornauga.
Pabba og mamma koma annars um helgina sem er vel, þá getur pabbi sett upp fínu IKEA ljósakrónuna sem ég keypti um daginn. Hún kom með öllum fylgihlutum.
Athugasemdir
Gott ad tú getir notad tann gamla er hann kemur .Tad er alveg ótrulegt ad fara í ikea hér í Odense,helmingurinn af lidinu sem vinnur tar er graut fúll
og fer í fýlu ef madur spyr um hjálp.Eg spurdi eina konu á mínum aldri hvort
henni fyndist ótægilegt ad ég skuli vera ad koma ad versla´hjá henni,en
greyid konan,var svo fúl og dónaleg ad ég gat ekki látid tad vera ad láta hana vita ad ég sætti mig ekki vid tilsvørin hjá henni.måske hefur hún bara átt slæman dag,en er ég vann í verslun ´
tá var ég alla vega ekki dóni og reyndi ad svara med bros á vør,tó mig langadi ad segja allt annad.Sammt er margt ágætt í ikea,keyptum kommódu í fyrra,sem tók 4 tíma ad ad smída hana saman hér heim
Frida frænka (IP-tala skráð) 13.9.2007 kl. 16:26
Ps,gott ad tú keyptir bara litlar fløskur,tad klingir minna í teim,vona ad tú hafir góda skemmtun
Frida frænka (IP-tala skráð) 13.9.2007 kl. 16:29
Bródursystir tín bad mig ad skila kvedju til ykkar,gleymdi tví ádan,en hún
er víst eithvad farin ad ruglast í ríminu blessunin
bródirsystir (IP-tala skráð) 13.9.2007 kl. 20:20
jæja, á að fara láta líða viku á milli bloggs... ég vil helst geta lesið eitt á dag!
Annars var gaman að sjá myndirnar af heimilshaldinu hjá þér inn á Facebook ;o)
Thorhildur (IP-tala skráð) 17.9.2007 kl. 14:16
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.