IKEA endavitleysan

ikeaÞó að ég sé nú hrifin af flestu því sem er sænskt hefur IKEA nú endanlega fram af mér gengið í lélegri þjónustu.  Þvílíka andskotans vitleysu hef ég ekki komist í tæri við eins og þá sem IKEA hefur nú spilað aðalhlutverkið í.  Þetta verður örugglega löng og leiðinleg færsla.  Varúð, enda afar leiðinlegt mál.

Þegar pabbi og mamma komu til að hjálpa mér að flytja í júlí notuðum við tækifærið til að fara í IKEA þar sem ég hef ekki bíl til umráða og kemst aldrei þangað þar sem þessi nýja búð er einhvers staðar á heimsenda.  Þar keyptum við m.a. fataskáp.  Þegar heim var komið og við hefjumst handa við að skella skápnum upp uppgötvum við það að það vantar nagla og höldur á skápinn.  Pabbi átti auðvitað nagla en því miður ekki höldur á lager.  Mamma hringir upp eftir og biður um að það verði sendar höldur sem sendust til afa og ömmu á Snorrabraut þar sem hún mundi ekki mitt heimilisfang.  Þegar höldurnar komu kemur í ljós að þær eru í vitlausum lit.

Ég hringi upp í IKEA.  Ég bið um að sendar verði réttar höldur.  Daman spyr þá hvort ég búi úti á landi.  Ég neita því en segist ekki eiga bíl og eigi því erfitt um vik að ná mér í þessar bévítans höldur.  Þá spyr hún hvort ég geti ekki bara beðið einhvern um að skutla mér.  Ég kann vel við vini mína og ætlast ekki til að þeir skutli mér milli bæjarhluta til að ná í skáphöldur og neita því.  Þá fer í gang prósess til að finna út á hvaða kennitölu þetta var og hvert sent og svo framvegis.  Ekkert fannst í kerfinu enda kvittun verið hent eftir að höldurnar fyrstu voru sendar af stað.  Daman gat ekkert hjálpað mér svo ég gefst upp og hringi og klaga í mömmu sem er meiri bógur en ég.  Hún hringir og heimtar að nýjar höldur verði sendar.  Aftur á heimilisfang afa og ömmu.  Þegar blessaðar pakkinn komst til gamla fólksins eru þau rukkuð um rúmar 500 krónur í póstburðargjald.  Þegar við systur fáum pakkann í hendur og rífum upp er þar bara ein halda en ekki tvær.  Aftur hringir mútta upp í IKEA og biður um að send verði enn ein haldan og vinsamlega að við munum ekki greiða fyrir burðinn.  Við fengum svo einn enn pakkann frá IKEA í gær og þá kom 1 halda en aftur í vitlausum lit.  Nú höfum við endanlega gefist upp á þessu stússi og ætlum bara að mála helvítis hölduna en við eigum eina í réttum lit og þrjár í vitlausum. 

Ef ykkur vantar höldur í viðarlit þá vitið þið hvert þið eigið að leita.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

hæ hæ.ef þetta er ekki efni í þjóðarsálina þa veit ég ekki hvað.eeennnn því miður þá er hún hætt.en á útvarpi sögu er eitthvað  hægt að hringja kvarta eða er það ekki?plíiisss hringdu.(filli frændi hefði sko gert það.)en hvað um það þetta sýnir bara það sem ég er alltaf að segja.útum allt er fólk sem er ekki að vinna vinnuna sína og kemst upp með það.en að öðru.mig langar rosalega að vita hver er þessi bróðursystir þín í síðustu athugasemd.ég hefði haldið að það væri annaðhvort Elma eða Dagny þó reyndar hafi ég nú ekki heyrt það orð yfir systur,hvað þá föðursystur.hahaha nei ég bara varð.knús til ykkar allra (,vona að kisa litla frænka mín sé brött.)frá FÖÐURSYSTIR.

Eygló Egilsdóttir (IP-tala skráð) 11.9.2007 kl. 19:05

2 identicon

Ohh guð hvað ég þekki þetta. Ég ætti ekki að byrja að tala um ákveðið flutningafyrirtæki og kassana mína sem eru enn í London. Þeir klúðraði öllu og sendi dónasendil trekk í trekk sem drullaði yfir meðleigjendur mína sem lentu í því að þurfa að afhenda kassana vegna þess að þeir voru ekki sóttir á tilsettum tíma. Kassarnir fóru loks af stað í dag, en ekki fyrr en sendillinn var búin að sýna yfirgengilegan dónaskap. Eins og hann hafi verið að gera okkur einhvern persónulegan greiða, ég borga þeim fullt af pening fyrir þetta. Á morgun hringi ég í einhvern alveg brjál!!!

Sólrún (IP-tala skráð) 11.9.2007 kl. 20:53

3 Smámynd: Anna Þorbjörg Jónasdóttir

Eygló, ég tók ekki einu sinni eftir að eitthvað væri athugavert við orðið bróðursystur fyrr en þú sagðir það, tók ekki eftir neinu!  Lotta blessunin er orðin ansi spræk þó ekki sé það gaman að troða í hana öllum þessum töflum sem hún fékk hjá lækninum.  Þú verður svo að fara að koma og kíkka á hana, nú og íbúðina

Anna Þorbjörg Jónasdóttir, 12.9.2007 kl. 08:54

4 identicon

Hef sagt það áður og segi það aftur...Þú ert prýðilegur penni Anna panna

 Mér finnst gaman að lesa bloggið þitt.

 Kveðja úr Vesturbænum,

Jón Gunnar.

Jón Gunnar (IP-tala skráð) 12.9.2007 kl. 22:22

5 Smámynd: Anna Þorbjörg Jónasdóttir

Takk fyrir það Jón!

Anna Þorbjörg Jónasdóttir, 13.9.2007 kl. 08:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband