Bloggleysi skrifast á mikið annríki í vinnunni og þar sem ég er ekki nettengd heima verð ég að lummast til að gera það á vinnutíma. Ekki haft ég haft samvisku síðustu daga í að vera að dunda mér við að skrifa blogg þegar síminn hringir látlaust þar sem fólk grætur í símann vegna þess að það hefur ekki fengið peningana sína og getur ekki gefið börnunum sínum að borða. Mánaðarmót eru ekki hressandi þegar unnið er hjá félagsþjónustunni. Einhvern veginn ekki alveg sama ríkidæmið hjá fólkinu hér og hjá þeim sem maður les um í blöðunum daglega sem eru t.d. að kaupa sér hús, rífa það og byggja nýtt, nú eða einkaþotu eða dýrasta bílinn á landinu.
Talandi um peninga, eins og þeir eru nú leiðinlegir, þá var ég fá ansi hreint leiðinlegt bréf frá sænska skattinum. Þeim þarf ég að borga rúmar 1000 krónur sænskar til baka vegna einhverra misútreikninga. Skil ekki hvað er hægt að reikna vitlaust þar sem 30% skattur er tekinn af öllu heila klabbinu, enginn persónuafsláttur og ekkert ves. Tja, nema þá þessi helvítis álagning kemur inn um lúguna algjörlega óvænt. Þar sem ég er nú almennt ekkert á móti sköttum ætla ég svo sem ekkert að gráta þetta mikið en finnst þó eitthvað skítt að vera að dæla peningum í sænska ríkissjóðinn þegar ég mun aldrei framar njóta þeirra almannagæða sem hann greiðir fyrir. Fékk reyndar ókeypis mastersgráðu frá þeim blessuðum þannig ætli þeir eigi ekki þennan 10 þúsund kall inni hjá mér. Frederik Reinfeld getur kannski boðið Geir Haarde vindil fyrir peninginn.
Athugasemdir
Athugaðu fyrir mig, bara fyrir forvitni sakir, hvað gerist ef þú borgar ekki...
Bjarki Þór Baldvinsson (IP-tala skráð) 5.9.2007 kl. 17:47
Hundsaði eitt sinn danskan símareikning þegar ég flutti frá Danmörku. Upphaflega var þetta einhver 1500 kall (ísl) en ég endaði með að þurfa að borga 18000. Hef því ekki áhuga á að reyna slíkt stunt aftur, nema auðvitað að þú sért tilbúin til að borga brúsann ef þetta fer úr böndunum
Anna Þorbjörg Jónasdóttir, 6.9.2007 kl. 08:28
Ég er með skornari og massaðri mönnum.
BMM (IP-tala skráð) 6.9.2007 kl. 18:16
Sæl elskan og fardu nú ad fá tér nettengingu.Tid systur ættud ad geta lagt saman í púkk.Eg skuldadi danska skattinum 1000,dkr frá árinu 1975 og er ég flutti til dk 1983 tá var ég rukkud aftur um leid og ég fékk afturdønsku kennitølunna.En tetta var vaxtarlaust øll tessi ár.Vissi ekki einu sinni ad ég skuldadi tessa peninga.Vona ad sambúdin gangi vel hjá ykkur og Dagga mín sé ánægd í tískubransanum.Bestu kvedjur til ykkar beggja frá bródursystur.
Frida frænka (IP-tala skráð) 10.9.2007 kl. 21:08
Langt síðan maður hefur heyrt frá þér frænka! Var farin að verða áhyggjufull.
Ætli ég hundsi ekki sænska skattinn, sýnist allir vera á því. Vonum bara það besta.
Æi það er eitthvað brjálað bras að fá net heima þar sem þarf að útbúa símtengi og svona, þarf að fá mann í verkið. Ætla aðeins að bíða með það þar sem dýralæknakostnaður er að sliga mig þessa dagana, litla kisa búin að vera voða veik.
Annars stendur Dagný sig vel í tískubransanum, er alltaf eins og tískusýningardama í vinnunni :)
Anna Þorbjörg Jónasdóttir, 11.9.2007 kl. 08:41
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.