Fjölgun

Nú hefur heldur betur fjölgað að Hverfisgötunni.  Ekki nóg með að köttur sé komin þar með heimili heldur líka ein lítil systir.  Hún Dagný mín hefur flutt inn til mín og mun ég nú féfletta hana sem mest ég má í leigu.  Ef fylgst er með leigumarkaðnum í Reykjavík alla vega þá gæti ég haft eins og hálf mánaðarlaun upp úr stelpunni.  En þar sem ég er ekki alslæm mun ég reyna að hemja græðgina.

Síðan sefur hún Gunna blessunin heima í þessum skrifuðu orðum.  Hún bankaði upp á hjá mér um miðja nótt og bað um húsaskjól sem ég veitti.  Áður en hún náði að stíga inn fyrir þröskuldinn náði hún að mölva tollinn sinn á útidyratröppunum.  Nú angar þar allt af gini.  Býst við að finna róna bæjarins sleikjandi stéttina þegar ég kem heim síðar í dag.

Góða helgi


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Bið að heilsa Gunnu Gellu og eigið góða helgi! það verður lítið um djamm hjá mér um helgina þar sem tengdó eru búin að boða komu sína...  þið verðið  bara að djamma fyrir mig líka!  Cheers! ;o) 

Lolo P (IP-tala skráð) 31.8.2007 kl. 08:41

2 identicon

Já eða þá sleikjum við stéttina sjálfar í kvöld, þegar birgðir okkar verða á enda. Þú hefur nú ekki verið þekkt fyrir að láta áfengi fara til spillis! Hlakka ti að sjá ykkur í kvöld!

Stína (IP-tala skráð) 31.8.2007 kl. 12:25

3 identicon

Ef ég þekki ykkur rétt látið þið tollmissinn ekki stoppa ykkur í því að drekka ykkur fullar um helgina. Skál frá Aarhus!

Sibbi (IP-tala skráð) 31.8.2007 kl. 14:09

4 Smámynd: Anna Þorbjörg Jónasdóttir

Er svo pen í drykkjunni að ég á minn toll enn síðan ég var í Danmörku fyrr í sumar.  Og svo erum við heldur aldrei fullar...

Bið að heilsa Århus

Anna Þorbjörg Jónasdóttir, 31.8.2007 kl. 14:28

5 identicon

je allt að gerast, mér tókst að drekka mig fulla líka, fagnaði því að vera búin að fyrsta uppkast, helvíti erfitt að vera að lesa yfir herlegheitin ósofinn og timbraður. En við verðum að standa undir nafni sem drykkjusvolar, hvurslags eiginlega penlegheit eru það að eiga enn tollinn?

Bið líka að heilsa Gunnu, njótið helgarinnar ;)

Sólrún (IP-tala skráð) 1.9.2007 kl. 21:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband