Mikið hefur borið á því í fréttum undanfarið að rætt sé um skrílslæti í miðborg Reykjavíkur. Þar ku ástandið aldrei hafa verið verra þar sem saklaust fólk sé nánast limlest ef það vogar sér niður í bæ. Svo vill nú til að ég bý í miðborginni og fer auk þess oftar en margur á öldurhúsin þar seint um kvöld. Aldrei hef ég orðið fyrir því að einhver hafi ráðist á mig né heldur hef ég orðið vitni að nokkrum slagsmálum þar. Vissulega er fólk með almenn drykkjulæti og hefur hátt en ekki meira heldur en á barnum á Raufarhöfn eða á Þorrablóti á Fáskrúðsfirði. Miðað við æsifréttamennskuna sem er í gangi um miðborgina mætti hins vegar halda að þar ríkti hálfgert stríðsástand.
Ég skil ekki hvaða tilgangi það þjónar að hafa fréttaflutning af þessu tagi. Er það til að fólk úti á landi geti hrisst hausinn og hneikslast yfir spillingunni og ómenningunni í höfuðborginni. Þetta verður líka til þess að hræða fólk eins og hann afa minn á Akureyri sem er víst voðalega smeykur við að hafa afkomendurna í þessu syndabæli.
Einhvern vegin grunar mig að í öðrum borgum sé ástandið ekkert skárra. En ég efa það að fyrsta frétt í BBC á aðalfréttatíma sé um að fólk hafi verið fullt í miðborg London, verið með læti og jafnvel slegist. Þar er kannski bara gengið út frá því sem gefnum hlut að fullt fólk sé með vesen en flestir hagi sér skítsæmilega.
Þannig að þið þarna úthverfa- og landsbyggðarfólk, ekki vera hrædd að kíkja í bæinn um helgar, það er mun meira hressandi en það hljómar í fréttunum.
Athugasemdir
Ég get ekki verið meira sammála þér og er orðin langþreytt á þessarri neikvæðu umræðu um miðbæinn okkar. Ég hef aldrei farið í miðbæ borgar þar sem ekki er fólk á ferli - og meira að segja fólk að skemmta sér.
Ég tel vandamálið liggja hjá lögreglunni. Hún má alveg láta sjá sig í miðbænum á álagstímum.
Ég bý í miðbænum og vona að fjölmiðlar fari nú á sjá að sér og tali líka um jákvæðar hliðar mannslífsins í miðbænum. Þar býr nefnilega fullt af fólki góðu lífi.
Helga Kr (IP-tala skráð) 29.8.2007 kl. 09:45
Ég man vel eftir því hvernig mér leið stundum þegar ég var nýflutt til borgarinnar góður, stundum var ég nett smeyk að labba ein heim og svona enda er alveg ástæða til. Manstu ekki Anna þegar þú fékkst far hjá einhvjerum gaur sem var ber að neðan!!?? Jóna vinkona bjó lengi í miðbænum en stundum langaði hana voða mikið í sund eldsnemma á laugardagsmorgni en þorði varla því það var mikið af fullu fólki og dópistum á götunum svo snemma um helgar. Ég hef persónulega góða reynslu af borginni og get ekki kvartað. Er reyndar alveg sammála því að fréttirnar eru ansi ýktar stundum og láta bæinn líta illa út.
knús til Reykjavíkur :)
Kristrún (IP-tala skráð) 29.8.2007 kl. 14:35
Haha, var búin að gleyma þessum bera að neðan gaur, djöful var það sýrt. Jújú það er svo sem engin fjölskyldustemning árla morguns um helgar í miðbænum en ef maður höndlar það ekki ætti maður bara að flytja upp í Grafarholt...
Skila kveðjunni. Reykjavík er reyndar ljót þessa dagana, bara rigning alla daga
Anna Þorbjörg Jónasdóttir, 30.8.2007 kl. 08:30
Ég man eftir svona fréttaflutningum frá í gamla daga, þá reyndar fjallaði það líka oft um unglingadrykkju, er það orð dottið úr tísku núna?
Hef svo stundað miðbæin stíft síðan og aldrei orðið vör við að þar ríki sérstakt stríðsástand og hef lengi verið nákvæmlega sammála þér. Grunar að það sé að einhverju leiti vegna þess hversu blessunarlega meðvitundarlítill maður er um umhverfi sitt á sínum miðbæjarstundum. Var eitt sinn á vegamótum og fannst það rosa sniðugt að sjá lögguna þar, og fannst jafnvel enn meira troðist og ýtt á mann en vanalega, heyrði það svo í fréttunum daginn eftir að það hefðu verið slagsmál þar inni, vegó er nú ekki stór staður, held að slagsmálin hafi verið við hliðina á mér en ég varð ekki vör við neitt, var bara hress.
Hef samt líka komist að þeirri niðurstöðu á seinustu árum að hugsanalega sé drykkjumenning íslendinga í ýktari kantinum, svona miðað við margar aðrar þjóðir. Stundum lítur miðbærin út eins og vitleysingahæli (og ég oft aðal sjúklilngurinn) en engu að síður held ég að afar íslands geti sofið nokkuð áhyggjulausir, alla vega áhyggjulausari en flestir aðrir afar heimsins.
Sólrún (IP-tala skráð) 30.8.2007 kl. 10:26
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.