Kisa

Picture 005Picture 018Picture 003Já, nú er kominn nýr fjölskyldumeðlimur á Hverfisgötuna.  Fór í Kattholt í gær og eftir langa umhugsun tók þessa sætu 4ra mánaða læðu.  Ég er ekkert hlutdræg en ég held að þetta sé besti köttur í heimi...

Ætla þó ekki að ganga fram af fólki með að tala mikið um köttinn svo ég læt staðar numið hér.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

aww krúttleg kisa,langar svo í kött

helgi (IP-tala skráð) 24.8.2007 kl. 09:15

2 identicon

Til hamingju!

Sólrún (IP-tala skráð) 24.8.2007 kl. 10:31

3 identicon

Til hamingju ! Vá hvað mig langar líka í svona loks þegar ég bý ekki lengur þar sem bannað er að hafa ketti !

 Var ekkert erfitt að velja eða kallaði þessi kisa akkúrat mest á þig ?

Hugrún (IP-tala skráð) 24.8.2007 kl. 13:01

4 Smámynd: Anna Þorbjörg Jónasdóttir

Þetta var sjúklega erfitt, voru svo margir sem ég vildi taka.  Um leið og ég tók þessa upp var hún sjúklega væmin og sæt og þegar ég spurði hvort ég ætti að taka hana sagði hún "mjá" og horfði beint í augun á mér.  Já, ég veit að ég er væmin....sorrí fólk

Skora á þig að fara í Kattholt og fá þér kisu!

Anna Þorbjörg Jónasdóttir, 24.8.2007 kl. 13:19

5 identicon

vá.til hamingju með kisuna.agalega sæt synist mér.svolítið lík frænku á Akureyri (mér)vona að þið eigið eftir að hugga ykkur mikið saman þarna í borg óttans.kveðja og knús frá gömlu.

eygló. (IP-tala skráð) 24.8.2007 kl. 17:55

6 identicon

Fínt að vera væmin !

 En já reyndar er ég með ofnæmi- er samt eiginlega sama , tel mér trú um að ofnæmið lúti í lægra haldi ef kisi kemur (er vön köttum í sveitinni og það virðist venjast !). Nú er bara að vona að mamma og pabbi gefi mér leyfi enda eiga þau íbúðina- ég bara væli nógu mikið ;)

 Gangi þér vel með kisuna :)

Hugrún (IP-tala skráð) 24.8.2007 kl. 20:09

7 identicon

Hún er algjört æði, til hamingju með hana. Og hvað á svo barnið að heita?

Þorerður í Nottingham (IP-tala skráð) 25.8.2007 kl. 02:53

8 identicon

Ég heiti að sjálfsögðu ekki Þorerður, heldur Þorgerður og leiðréttist það hér með ;)

Þorgerður (IP-tala skráð) 25.8.2007 kl. 02:54

9 identicon

Til hamingju Anna min. Kiss til kisu

Habbý (IP-tala skráð) 25.8.2007 kl. 05:12

10 identicon

Til hamingju med fjölskyldumeðliminn! hún virkar alveg þokkalega sæt fyrir kisu að vera, verð að viðurkenna að ég er lítil kisu kona, þeir fordómar tengjast líklega eithvað ofvirku ofnæmiskerfi og svoleiðis veseni...

ég bið samt að heilsa litla tígrisdýrinu.

LoloP (IP-tala skráð) 26.8.2007 kl. 18:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband