Nú er Reykjavík aftur orðin eins og ég þekki hana best. Það er rigning.
Þegar ég hjóla til og frá vinnu í rigningu verð ég pirruð. Svo virðist sem allir séu staðráðnir í því að vera fyrir mér svo ég komist ekki leiðar minnar fljótt og örugglega og verð ég því enn blautari fyrir vikið. Helvítis gangandi vegfarendur ganga á miðri gangstétt svo ekki er hægt að komast fram úr þeim og ekki dugar að bjalla á þá því þeir heyra ekki neitt innan úr regnhettunum. Bévítans bílstjórarnir ótillitsamari sem aldrei fyrr, sitjandi inni í hlýjum, þurrum bílum, og svína á mann í tíma og ótíma sem og skvetta á mann vatni þegar þeir hlunkast ofan í polla. Held að ég verði aldrei geðvondari en einmitt í svona aðstæðum. Svo er ég líka svo kúl að ég geng ekki í regnfötum og það er ekki til að bæta á ástandið. Fór því á stúfana í gær til að athuga um kaup á regngalla og kíkti í 66°N. Það er af sem áður var þegar þau klæði voru ætluð almúganum. Verðin eru greinilega stíluð inn á sívaxandi hóp hátekjufólks sem ég tilheyri ekki. Neita að kaupa mér ljót regnföt á andvirði eins og einnar fartölvu. Ætli ég verði ekki að kíkja í Rúmfó sem er greinilega verslun sem ætluð er mínum líkum. Finnst samt eitthvað lummó að ganga í fötum úr Rúmfatalagernum.
Flokkur: Bloggar | 22.8.2007 | 09:43 (breytt kl. 09:44) | Facebook
Athugasemdir
Ég veit Anna mín, það eru bara vel efnað fólk eins og ég sem ganga í úlpum frá 66°N, en þú veist ef maður sparar sér það að kaupa bíl, borga offjár í bensín og tryggingar má maður alveg splæsa í almennilega skjólflík. Það er ekki annað hægt, annars verður maður bara geðvondur á hverjum degi. Úlpan mín bjargaði mér alveg síðasta veturinn á fróni, í henni fannst mér ég fær í flestan sjó, eini gallinn var að það var ennþá erfiðara en vanalega að tala við mig, heyrði ekkert innan úr hettunni, sem gerði aðra pirraða en ég var sæl og glöð í skjóli fyrir veðri, vindum og geðvonsku.
Sólrún (IP-tala skráð) 22.8.2007 kl. 12:42
En held nú samt að regnjakki á yfir 40 þúsund sé nú ansi mikið. Spara nú ekki það mikið á því að eiga ekki bíl ef ég þarf að borga slíkar upphæðir fyrir að halda mér þurri. Þarf ekkert flík sem andar og gerir alls kyns fínerí sko til að hætta mér út í rigninguna.
Anna Þorbjörg Jónasdóttir, 22.8.2007 kl. 12:46
Svo er um að gera að nýta sér útsölur þegar þær eru- ert nú líklega of sein í því núna. Á útsölum er oft hægt að finna mjög fínar flíkur og mjög lækkuðu verði:)
Hugrún (IP-tala skráð) 22.8.2007 kl. 16:22
Nei 40 þús er kannski yfirdrifið, ég sem hélt að úlpan mín hefði verið dýr (en dýrindis hettan gerði hana hverrar krónu virði). Voru þeir bara með eina gerð af regnjakka eða? En skelltu þér endilega í rúmfó og fáðu þeir eina svona regnslá, kannski á líka síminn eitthvað af ókeypis svona slám á lager síðan um versló einhverntíman?
Sólrún (IP-tala skráð) 22.8.2007 kl. 18:28
Já, það væri nú til að toppa það, verslunarmannahelgarregnslá merkt símafyrirtæki
Anna Þorbjörg Jónasdóttir, 23.8.2007 kl. 08:22
Ég geng um í mjög ódýrum regnfötum úr Fötex en það er víst ekkert svoleiðis heima. Ég vara annars við fötum með Goritex og öðrum efnum sem "anda" því ég las grein í fyrra að þau innihalda efni sem veldur krabbameini og veldur mikilli mengun í náttúrunni. Held að Hagkaup hljóti nú að vera með eitthvað skítsæm fyrir þig væna. Þú gætir að meira að segja tékkað á einhverjum second hand búðum ef þær finnast ennþá í Reykjavík? Ekki kaupa þetta dýra drasl sem er fullt af skaðvænum efnum!
Smá skot, en þegar þú talar um að gangandi vegfarendur á miðri gangstétt böggi þig er það þá ekki bara af því að gangstéttar eru ætlaðar fyrir gangandi vegfarendur en ekki hjólreiðamenn?? Ég hef oft verið skömmuð hérna fyrir að hjóla á gangstéttunum hehe ég sýni alltaf svona "mér er sko skítsama hvað þú segir svip".
Kristrún (IP-tala skráð) 23.8.2007 kl. 14:01
En í Danmörku eru hjólastígar, hér vitum við ekkert hvar við megum hjóla, erum hvergi velkomin :(
Anna Þorbjörg Jónasdóttir, 23.8.2007 kl. 14:21
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.