Þar sem að nú er ég loksins komin með fasta búsetu hef ég nú ákveðið að fá mér kött. Ég feta brautina hægt og bítandi að því að verða dularfull einsetukona. Fyrst er það kötturinn, svo er það dagblaðasöfnun og svo fleiri kettir og alls konar rusl og matarafgangar.
Er orðin eins og krakki, get ekki beðið og geri varla annað en að skoða mögulega ketti til ættleiðingar frá Kattholti á netinu. Á meðan jafnaldrar mínir eru að hlaða niður börnum þá hef ég tekið þá gríðarstóru ákvörðun að fá mér kött. Mér finnst það sjúklega mikil ábyrgð. Skil ekkert hvernig fólk leggur í það að fá sér krakka. Kettir eru líka miklu krúttlegri, kunna ekki að grenja, kúka í kassa, ódýrari í rekstri og maður getur átt svoleiðis aleinn.
Góða menningarhelgi
Athugasemdir
Já en kötturinn heimsækir þig ekki á elliheimilið andskotinn hafi það!
Allý (IP-tala skráð) 17.8.2007 kl. 19:00
Þess vegna er svo gott að eignast bara börnin seint af því að þá verða þau yngri þegar þau koma að heimsækja mann á elliheimilið. Ekkert gaman að verða heimsóttur af öðru gamalmenni
Anna Þorbjörg Jónasdóttir, 19.8.2007 kl. 12:35
jæja þá verð ég víst að fá gistingu hjá einhverjum öðrum en þér þegar ég kem suður, er með rosalegt ofnæmi. Annars samgleðst ég þér að hafa eitthvað lítið og sætt til að knúsa :) Gangi þér vel með uppeldið hehe.
Kristrún (IP-tala skráð) 19.8.2007 kl. 16:00
Æi en ömurlegt. Ætlaði nú ekki að vera að fæla burt væntanlega gesti með því að fá mér kisu...
Anna Þorbjörg Jónasdóttir, 21.8.2007 kl. 11:21
Góð ertu að ættleiða kisu frá Kattholti. Er kisan komin til þín og endilega skelltu inn mynd af krúttinu ;)
Ég hef annars einu sinni farið i Kattholt og mér leið ömurlega á eftir !!! Fullt af einmana, aumum vælandi kisum lokuðum í litlum herbergjum sem lykta af kattahlandi. Allir horfðu á mann og það var eins og þeir væru að grátbiðja mann að velja sig.
Auðvitað hefði maður viljað leyfa öllum að fá heimili !!
Hugrún (IP-tala skráð) 21.8.2007 kl. 13:47
Nei er því miður ekki komin með kisu. Þar sem maður er bíllaus verður maður að treysta á aðra hvenær hægt sé að fara í kattarleiðangur. Get alveg trúað að þetta sé ömurlegt að fara þangað, ætli ég endi ekki upp með 10 ketti eða eitthvað. Skil ekki hvað fólk getur verið ömurlegt við gæludýrin sín og bara hent þeim út og gleymt þeim. Mun sko dekra við minn :)
Anna Þorbjörg Jónasdóttir, 21.8.2007 kl. 13:56
Já þú meinar- allavega ef það er opið um helgar er ég meira en til í að fara með þig keyrandi um næstu helgi- hefði gaman að því að sjá kisur sjálf ;)
Þú veist af þessu ef enginn kemst fyrr- ég er í símaskránni :) Já ég veit ég er forfallin kisumanneskja ,hreinlega elska ketti og finnst mjög leiðinlegt að eiga engan hér fyrir sunnan.
Hugrún (IP-tala skráð) 21.8.2007 kl. 23:14
Mjög fallega boðið! Er búin að tékka hvort það sé opið um helgar því þá get ég fengið skutl en svo er ekki því miður. Systir mín og vinkona hennar eru að koma suður á morgun á bíl og þá ætlum við að reyna að fara. Takk samt :)
Anna Þorbjörg Jónasdóttir, 22.8.2007 kl. 08:25
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.