Verð aðeins að pirra mig á Sjónvarpsmarkaðnum á Skjá einum. Þegar ég bíð eftir Gæding svissa ég stundum yfir og um leið hellist yfir mig mikill pirringur. Og athugið, ég horfi á Gæding og pirrast ekki þá, þannig að pirr stuðullinn er greinilega hár hjá mér (eða svona).
Gaurinn sem kynnir þessar, samkvæmt honum, lífsnauðsynlegu vörur er hreint út sagt óþolandi. Hann segir í lok hverrar kynningar; pantaðu æfingarprógrammið/töfraskrúfjárnið/megrunarkúrinn strax í dag og er eitthvað svo kankvís á svipinn að mann langar mest að sparka í skjáinn.
Skil heldur ekki alveg, þarna eru einhver lóð sem maður heldur á þegar maður labbar, voða sniðugt. Þetta kallar gaurinn "æfingaprógram". Þessi græja kostar 12900 kr. Hver kaupir þetta drasl eiginlega?
Athugasemdir
já það er einmitt mjög fyndið hvernig þeir búa til voða "fín" nöfn yfir þessa huti og láta líta út fyrir að þetta sé eitthvað nýtt eða voða sniðugt þegar þetta er í raun bara eitthvað algjört drasl. Ég hálf sakna þess að horfa á þetta!! Auglýsingar fyrir þá "auðveldu". Þú ert náttúrulega ekki sá mesti "neytandi" sem ég þekki og ert örugglega ekki auðveldlega göbbuð með svona trixum en það eru þó margir sem kaupa þetta algjörlega hrátt og halda að líf þeirra taki stakkaskiptum við að eiga töfraskrúfjárnið eða eitthvað annað í þeim dúr. BARA fyndið haha! :)
Kristrún (IP-tala skráð) 16.8.2007 kl. 14:57
Styggð' ekki steggina með loðnum leggjum! Er til fallegri lína en það?
Sólrún (IP-tala skráð) 17.8.2007 kl. 09:04
Sú lína er löngu orðin klassíker
Anna Þorbjörg Jónasdóttir, 17.8.2007 kl. 10:29
Thad sem mer finnst lika sjuklega fyndid vid thennan kall er ad hann er ekki talandi. Hann segir alltaf Vovda i stad vodva (demit enskt lyklabord... o=sidasti stafurinn i isl stafrofi og d= thid vitid hvad).
Kvedja fr'a UK!
Stina (IP-tala skráð) 19.8.2007 kl. 14:46
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.