Þegar ég loksins flutti í mitt eigið húsnæði notaði móðir mín tækifærið og losaði geymsluna heima á Akureyri af öllum þeim hlutum sem voru frá mér komnir. Það er líkt að ég hafi aldrei búið þar, eða svona næstum. Þar sem ég vil aldrei henda neinu kom ýmislegt skemmtilegt í ljós þegar ég tók upp úr kössunum. T.d. mátti þar finna svokallaðar pósíbækur, svona bækur sem bekkjarfélagarnir skrifa í eða teikna. Í sumum bókana voru staðlaðar spurningar, eins og hverjir séu uppáhaldskennarar, uppáhaldsfög, áhugamál og fleira. Sérstaklega stuðandi þótti mér þó spurningarnar um hæð og þyngd sem mér finnst einhvern veginn ekki passa í svona bækur. Skemmtilegt þó fyrir mig svona eftir á að vita að þegar ég var í 6. bekk vó ég 30 kg og var að mig minnir 135 cm. Það hefur aldeilis tognað úr manni síðan þá á báða vegu.
Afar skemmtilegt fannst mér að lesa hvað litlu börnin ætluðu sér að verða þegar þau yrðu stór. Vona að ég sé ekki að brjóta trúnað neins þó ég skrifi hér upp úr bókinni. Sólrún ætlaði að verða bakari eða auglýsingarteiknari en í dag er hún að fara að vinna fyrir Sameinuðu þjóðirnar í Malaví, Benni Brynleifs ætlaði að verða bestur í heimi í handbolta en í dag er hann trommari, Karl Henry ætlaði að verða BIG en er held ég ekki svo hávaxinn í dag, Bjarki ætlaði að verða viðskiptafræðingur en er sálfræðinemi í dag og ég ætlaði að verða fóstra. Það var ekki að ég hafi verið sérstaklega hrifin af börnum, enda barn sjálf í 3ja bekk þegar þetta var ritað, heldur þótti mér gaman að því að föndra og hélt ég að það væri það eina sem fóstrur þyrftu að gera. Komst heldur betur að öðru síðar í lífinu.
Fyrir áhugasama sem vita að þeir hafa ritað í þetta merka rit og vilja fá frekari upplýsingar geta óskað eftir því hér í kommentakerfinu. Mun einnig eflaust hafa húslestur úr bókunum við tækifæri.
Athugasemdir
Haha, ég man eftir þessu! Bæði eftir fönduráhuga þinum og hvað ég ætlaði að verða þegar ég yrði stór Ætli ég hafi nokkuð gert mér grein fyrir hversu snemma bakarar þurfa að vakna.
Ég fann líka ýmislegt áhugavert þegar ma og pa fluttu, finnst það benda til þess að þrátt fyrir fornan kökugerðaráhuga sé ég á réttri hillu að ég fann teiknaðar myndir alveg frá leikskóla af Afrísku fólki, yfirleitt með krukkur á hausnum, bein í nefinu og í einhverju sem virðist vera einhverslags lurkapils. Ekki alveg jafn pólitískt rétthugsandi mannfræðingur þá og nú.
Sólrún (IP-tala skráð) 8.8.2007 kl. 10:20
Snemma beygist krókurinn greinilega. Við verðum að fara almennilega í gegnum þetta þegar þú kemur næst til Íslands, þetta er stórkostleg skemmtun. Sérstaklega fannst mér hressandi að lesa um uppáhaldshljómsveitirnar; Skriðjöklar virðast hafa verið málið á þessum tíma!
Anna Þorbjörg Jónasdóttir, 8.8.2007 kl. 10:24
Já það er gaman að þessu. Hlakka til húslestrarins. Pældu hvað við erum búnar að þekkjast lengi! Yfir tuttugu ár! Og Bjarka viðskiptafræðing líka, ég man nú eftir honum að sýna mikil tilþrif á dansgólfinu forðum daga, þegar ég mætti í sömu pokabuxunum á hvert ball!
Sólrún (IP-tala skráð) 8.8.2007 kl. 11:00
Hef þekkt þig lengst af öllum, síðan í núll bekk! Rámar eitthvað í þessar pokabuxur en það hefði nú verið gaman að því að eiga fleiri myndir af þessum tíma, af Barnaskólaböllunum og svona
Anna Þorbjörg Jónasdóttir, 8.8.2007 kl. 11:15
já já hefði maður aðeins haft myndasíma og digital myndavél
Sólrún (IP-tala skráð) 8.8.2007 kl. 11:25
Gaman að þessum bókum! Ég hef einmitt skoðað mínar og það var mjög vinsælt að skrifa að maður ætlaði að vera bestur í heimi hehe. Ég ætlaði alltaf að vera hjúkka því þær voru í svo fínum búningum en núna er ég ekkert voðalega langt frá því að vera hjúkka þó ég stefni að sjálfsögðu ennþá á að verða sálfræðingur. Bjarki varð reyndar næstum viðskiptafræðingur en hann var í einhverju svona námi hérna um daginn áður en hann ákvað að fara aftur í sálfræðina, er það ekki rétt hjá mér Bjarki? Ég og Sóley vorum bestur vinkonur í 8. og 9. bekk og hún ætlaði sér að verða sálfræðingur en ég vildi verða arkítekt en í dag er hún með ba í arkitektúr og ég í sálfræði!! haha.
Kristrún (IP-tala skráð) 8.8.2007 kl. 21:47
Stefni nú að því að verða heimavinnandi húsmóðir.
Bjarki Þór Baldvinsson (IP-tala skráð) 9.8.2007 kl. 21:29
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.