
Þegar maður tekur lán fyrir íbúð hjá Landsbankanum þarf maður að skrá sig í Vörðuna. Þegar þangað er komið er prangað upp á mann alls kyns kortum og fíneríi. Nú er ég sem sé komin með gull debetkort og gull visakort. Eitthvað þykir mér það gefa ranga hugmynd um fjárhagsstöðu mína og gæti þetta eflaust haft leiðinlegar afleiðingar. Þegar ég fékk gull visakortið mitt fékk ég með svona voða fín spjöld með nafni mínu og heimilisfangi til að setja á töskurnar mínar þegar ég fer til útlanda. Þannig að í stað svona pappírssneppla sem maður skrifar á með penna hanga á mínum töskum svona líka fín hörð spjöld með nafni mínu greiptu í. Ef ég væri þjófur myndi ég frekar stelpa svoleiðis töskum. Eðlilegt væri einmitt að ætla að fólk með gullkort ætti meira gull en hinir. Svo finnst mér líka eitthvað plebbós að vera með gullkort. Hégómapúkinn sem leynist inn í mér finnst það hins vegar sjúklega töff, sbr. að ég er að skrifa um það hér!
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.