Fór á tónleika í geir á Grand Rokk sem karlahópur Feministafélags Íslands stóð fyrir. Tónleikarnir voru haldnir til að vekja upp umræður um nauðganir og voru frjáls framlög til Stigamóta. Ótrúlega gott framtak og skemmtilegt að heyra stráka tala um þetta mál og taka þar með ábyrgðina af okkur kvenfólkinu. Það er óþolandi þegar reynt er að útskýra af hverju þessari eða hinni er nauðgað í stað þess að finna svar við því af hverju þessi eða hinni nauðgi. T.d. þegar sagt er að konur verði að passa sig voðalega vel svo þær lendi ekki í nauðgun. Mér finnst t.d. óþolandi þegar fólk er eitthvað að æsa sig yfir því að ég labbi ein heim til mín á nóttinni úr bænum. Að það bjóði hættunni heim. Ég á þann rétt að geta labbað sjálf heim ef ég vil og á ekki að láta fólk hræða mig til annars. Ég neita að lifa lífi mínu eftir einhverjum ógeðslegum körlum sem nauðga konum sér til skemmtunar. Og ég ætla að líka að klæða mig dræsulega þegar mig langar til. Hah!
Þetta voru fínir tónleikar en við gáfumst þó upp áður en hittara hljómsveitin Sprengjuhöllin steig á svið. Þarna var nefnilega viðbjóðslega troðið og svo skemmtilega vildi til að einhverjar amerískar gellur sátu á næsta borði og töluðu ógeðslega hátt allan tímann. Fólk var svona að sussa á þær annað slagið, en þær létu ekki segjast. Ein þeirra kom samt með skemmtilegt komment þegar Lay Low var að spila. Hún sagði með miklum amerískum hreim; Is this like Björk in the early 90s?. Hmmm, nei.
Athugasemdir
Ég fíla hvað Íslendingar eru meðvitaðir um svona málefni en hérna í Danmörku eru kynjahlutverkin pínu gamaldags og það virðist ekki vera mikið um feminískar umræður neinsstaðar. Ég er alveg hætt að klæðast druslulega og sakna þess eiginlega! Verð greinilega að drífa mig í H&M og kaupa mér flegin bol hehe.
knús
Kristrún (IP-tala skráð) 2.8.2007 kl. 15:34
Íslendingar hafa þó ekkert í Svíana, þar er þetta rætt endalaust og á allt öðru leveli en hérna.
Já, maður er svo sem alveg hættur í druslustílnum, varla að maður sýni skoru lengur. Það er af sem áður var!
Anna Þorbjörg Jónasdóttir, 2.8.2007 kl. 15:54
Heyr heyr!!
Er alveg sammála, það er óþolandi að þurfa að láta glæpi annarra hefta sig. Mér finnst það versti gallinn við að búa utan íslands, það er svo mikið helsi að þora ekki að haga sér nákvæmlega eins og maður vill.
Verð samt að segja eitt, að passa sig er ekki það sama og að taka ábyrgðina af karlmönnum. Auðvitað eigum við rétt á að labba einar þar sem okkur sýnist, hvenær sem okkur sýnist, en í raunveruleikanum er það ekki alltaf skynsamlegt. Það væri of hræðilegt að verða fyrir árás sem maður hefði getað komist hjá bara ef maður hefði tekið leigubíl heim. Það þýðir ekki að maður hafi boðið upp það eða að árásarmaðurinn beri ekki alla ábyrgð.
Ætla samt ekki að láta eins og þetta viðhorf hafi beinlínis stjórnað lífi mínu hingað til, sérstaklega ekki heima á fróni, eins og þú veist manna best og ég held reyndar að það sé þokkalega óhætt að ráfa einn um á næturnar í Reykjavík. En það eru fullt af stöðum í heiminum þar sem maður gerir það bara ekki, hvað sem öllum prinsípum líður, síðasta árið hef ég kært mig meira um eigið öruggi en að sanna rétt minn (ætli ég hafi ekki líka sannað hann ágætlega undanfarin ár).
En gærulega mun ég alltaf klæða mig og læt ekki neinn segja mér annað!
Sólrún (IP-tala skráð) 2.8.2007 kl. 15:54
Gæti ekki verið meira sammála, sorglegt hvað gömul viðhorf varðandi þetta lifa lengi... hún var í stuttu pilsi og ögraði honum...
Þórhildur Fjóla (IP-tala skráð) 3.8.2007 kl. 07:33
Talandi um að vera öruggur og taka leigubíl heim þá er það oft ekki besta ráðið því hérna í DK hafa verið nokkur mjög nasty dæmi þar sem leigubílstjórar hafa bundið og nauðgað ungum stelpum! Kamilla vinkona sem bjó lengi í London segir til dæmis að maður þurfi að passa mjög vel hvaða leigubíl maður taki heim ef maður er einn á ferð seint að kvöldi. Passaðu þig sólrún!
Ég hata einmitt svona klisjur um að konan hafi verið full eða hafi verið gærulega klædd og því "átt það skilið" að vera nauðgað. En annað þoli heldur ekki en það er þegar fólk gerir ráð fyrir að hommar séu barnaníðingar en ég varð vitni að því í sjónvarpinu um daginn að kona sem er talsmaður fyrir kaþólsku kirkjuna sagði að nú myndu þau spyrja alla sem vildu verða prestar hovrt þeir væru hommar til að koma í veg fyrir fleiri nasty dæmi um að prestar misnoti börn!! ég varð alveg brjál þegar ég sá þetta.
Kristrún (IP-tala skráð) 3.8.2007 kl. 12:01
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.