Það er greinilegt að ég er flutt í gettóið. Þegar ég ætlaði að bregða mér á bak hjólhesti mínum var framhjólið punkterað. Það var svo flatt að það leikur enginn vafi á því að einhver hefur stungið í dekkið. Ég þurfti því að skunda í flýti í vinnuna sem tekur mig tæpan hálftíma. Nennti ekki að tékka á strætó, held maður sé fljótari að labba, hann kemur svo sjaldan og svo þarf maður að eiga akkurat fyrir fargjaldinu. Kom því of seint í vinnuna í fyrsta skiptið. Vona að ég verði ekki rekin.
Athugasemdir
þetta kemur bara fyrir einu sinni... þú læsir hjólið bara inn í fínu geymslunni þinni bæði sumar og vetur, það fer líka betur með hjólið... en ég get ímyndað mér hvaða þetta hefur verið pirrandi þegar manni liggur á að fara í vinnuna...
lolop (IP-tala skráð) 31.7.2007 kl. 10:39
Jú jú láttu mig þekkja þetta, við töpuðum nú hvorki meira né minna en 5 hjólum í þessu sama hverfi, þó að sum hjólin hafi fundist og tapast á ný oftar en einu sinni glötuðust önnur okkur að eilífu, 101 Rvík er ekkert grín.
Sólrún (IP-tala skráð) 31.7.2007 kl. 11:51
Er nú að flytja innan 101 en þar voru engin vandræði. Hverfið virðist verða skuggalegra eftir því sem maður kemst nær löggustöðinni. Merkilegt!
Anna Þorbjörg Jónasdóttir, 31.7.2007 kl. 11:53
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.