Ég horfði á myndina The Number 23 í gær. Hún gengur út á vænissýki gagnvart tölunni 23. Persóna sögunnar sér þessa tölu út úr öllu og telur hana ásækja sig. Í einu atriði myndarinnar telur hann skó konu sinnar en hún á einmitt akkurat 23 skópör. Ég gat ekki stillt mig um að telja mína skó; hvað haldiði, ég á líka akkurat 23 skópör (sem voru inni í herbergi, nokkur voru frammi á gangi). Ef þið verðið vör við persónuleikabreytingu á mér er hægt að kenna 23 um sem er hér með byrjað að ásækja mig.
Athugasemdir
23 skópör!!! Hvernig fórstu að því? ég á held ég innan við 10! Best ég fari og telji
Sólrún (IP-tala skráð) 30.7.2007 kl. 11:42
Það er ekki neitt! Þetta eru alls kyns draslskór, t.d. einhverjar töfflur frá Indlandi og svona...
Anna Þorbjörg Jónasdóttir, 30.7.2007 kl. 12:02
já vá segi það sama! Fullt af skóm :)
Kristrún (IP-tala skráð) 30.7.2007 kl. 15:44
mér datt í hug ad telja mína skó í dag og nádi ég upp ad 33+gúmístígvél.....og ef ég tel Eyglóar skó sem hún skildi eftir hér,tá er ég med 38 pør.Finnst ég samt aldrey eiga neina skó ad fara í.
Ferdu ekki ad smella mynd ad íbúdinni tinni á netid?????
Frida frænka (IP-tala skráð) 30.7.2007 kl. 16:25
Buin að telja, er með 10 pör hér í london, 13 ef maður telur flip flops, býst við að ég eigi einhverja hælaskó til viðbótar á fróni svo ég vanmat eitthvað skóeign mína.
Já hvernig væri ef maður fengi að sjá eitthvað af myndum af íbúðinni?
Sólrún (IP-tala skráð) 30.7.2007 kl. 16:47
Vóts! Ég á líka 23 skó! Með inniskóm. Mjög hissa miðað við hvað ég varð hissa yfir þinni skóeign. Að ég skuli eiga álíka magn.. En það eru nátturlega tvennir inniskór og tvennar töfflur. Samt fyndið!
Stína (IP-tala skráð) 30.7.2007 kl. 23:22
Þessi skótalning er að verða spennandi, ég taldi 25 pör í minni eigu en tek það fram að ég fór með dálítið mörg í nytjagáma áður en ég flutti (hver þarf 25 pör af skóm?) Annars Anna mín ég þarf að semja við þig um gistingu þegar ég kem suður 18. águst bara 1. nótt, ég er að fara með kirkjukórnum mínum og ætlum við að syngja messu í Hallgrímskirkju 19 ág.en ég ræði þetta betur við þig þegar þú kemur um versló til Akureyrar hlakka til að sjá Inga Salla
Inga frænka (IP-tala skráð) 30.7.2007 kl. 23:30
ÞEtta er aldeilis orðinn skemmtilegur leikur; teldu skóna!
Inga mín, auðvitað færðu gistingu, bara gaman að fá gesti til að sýna nýju íbúðina.
Verð að fara að kaupa batterí í myndavélina til að geta tekið myndir, smelli þeim inn hið fyrsta
Anna Þorbjörg Jónasdóttir, 31.7.2007 kl. 08:33
gleymdi að segja að ég hef séð þessa mynd of varð fyrir vonbrigðum og fannst hún frekar léleg. Það er þó alltaf gaman af því að spá í tölum og finna einhverja skringilega hluti út úr þeim!!
Kristrún (IP-tala skráð) 31.7.2007 kl. 13:15
Kannski engin stórmynd, viðurkenni það nú alveg. En skemmtileg pæling
Anna Þorbjörg Jónasdóttir, 31.7.2007 kl. 13:21
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.