Fyrst maður er byrjaði á þessari myndamaníu læt ég hér flakka með myndir frá því deginum eftir. Öllum gestunum var boðið í brunch með beikoni og tilheyrandi næsta dag. Sérlega hressandi eftir glauminn og gleðina nóttina áður. Við vorum síðan þarna fram eftir degi og nutum veðursins. Þess má geta að þetta var hálfgert reunion fyrir okkur þar sem Sólrún býr í London, Gunna í París, Dís í Kaupmannahöfn og svo við Stína í Reykjavík.
Getraun: Hvað þýðir "færist" á dönsku? (Sólrún glögga áttaði sig fljótt á því en við Stína, sem bjuggum töluvert lengur í Danmörku en hún, vorum ekki eins skarpar)
Athugasemdir
Það mætti halda að ég sé að skála í gammeldansk við sólrúnu á efstu myndinni!... Hefði nú verið við hæfi! En þetta er nú bara beikonsneið (sú stökkasta og besta sem ég hef smakkað)
Stína (IP-tala skráð) 25.7.2007 kl. 16:52
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.