Nennti ekki að bíða með að komast á netlaust kaffihús með mína tölvu til að setja hér inn mínar myndir. Set því bara Sólrúnar myndir í staðinn.
Brúðkaup Dísar og Noah var haldið á Sjællands Odde í svona sumarbústaðarhverfi einhverju. Þetta var við strönd og voða fallegt þarna í kring. Þau höfðu leigt risastórt hús þar sem allir gestirnir gistu. Athöfnin var haldin úti, uppi á hól þarna hjá, með útsýni yfir hafið. Þetta var ekki trúarleg athöfn svo hún var alveg laus við alla helgislepju. Stína fína spilaði við athöfnina. Akkurat meðan athöfnin var kom smá rok og varð skýjað en fljótlega eftir að henni var lokið brast á með blíðu. Júníus, sonur brúðarparsins var voðalega hamingjusamur þegar mamma hans og pabbi höfðu loksins verið pússuð saman. Líklega fannst honum vandræðalegt að eiga foreldra sem lifa í synd. Dís var svo fallegasta brúður sem ég hef séð eins og myndirnar bera með sér. Svo borðuðum við eins og 2 heil svín og höfuð þeirra má sjá hér að ofan. Smart!
Myndirnar sem teknar voru hér á eftir vil ég helst ekkert vera að setja inn, bara vandræðalegt fyrir mig og mína. Það var allavega stuð fram eftir allri nóttu og íslensku gestirnir auðvitað síðastir að sofa.
Yndislegur dagur í alla staði og hvet ég hina vini mína að drífa sig að gifta sig, bara svo ég geti komist í svona skemmtilega veislu aftur.
Flokkur: Bloggar | 25.7.2007 | 09:29 (breytt kl. 09:33) | Facebook
Athugasemdir
Sæl Anna Þorbjörg..
Það er rétt hjá þér að Dís er með fallegri brúðum sem sést hafa:) Greinilega fallegt teiti. Langaði nú bara að kvitta fyrir mig og óska þér til hamingju með íbúðina.. Er að flytja suður innan skamms, kem og kíki á dýrðina. Kv að austan, Silja
Silja (IP-tala skráð) 25.7.2007 kl. 10:52
Hæ Silja!
Gaman að heyra að þú sért að koma í borgina. Væri voða gaman að hittast eitthvað, það var nú skemmtilegt síðast hjá okkur. Heyrumst!
Anna Þorbjörg Jónasdóttir, 25.7.2007 kl. 10:55
Hæ sæta!
Takk fyrir síðast, það var mikið stuð og gaman. Þetta var án efa skemmtilegasti dagur á æfi minni, hversu oft hefur maður eiginlega alla vini sína samankomna í sama teiti??
Svo vil ég einnig óska þér tilhamingju með íbúðarkaup...það finnst mér nú svolítið fullorðins. Ef þú skyldir vera eitthvað fyrir norðan í sumar þá verð ég þar frá 13-22 ágúst.
KOss Dís
Dís (IP-tala skráð) 25.7.2007 kl. 20:32
Hæ Dís skvís
Takk sömuleiðis, takk fyrir mig! Gott hvað allt heppnaðist vel og þú gast notið dagsins ykkar.
Verð nú held ég ekkert á Akureyri þarna en ef þú kemur suður máttu fá gistingu í nýju íbúðinni, er með auka herbergi :)
Anna Þorbjörg Jónasdóttir, 26.7.2007 kl. 08:28
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.