Á morgun verður allt gott. Þá kemur björgunarsveitin frá Akureyri, klifjuð alls kyns varningi til að fylla íbúðina mína af sem og stútfull af verkviti og almennum dugnaði. Mamma og pabbi eru sem sé á leiðinni. Eins og mér þykir nú gaman að redda mér sjálf vantar mig stundum foreldrana góðu til að hjálpa mér við ýmsustu verkefni. Ég kann t.d. ekki að tengja þvottavél eða setja ný ljósastæði. Pabbi minn er einstaklega handlaginn maður og þar að auki rafvirki og getur vonandi aðstoðað við þetta. Mamma mín er duglegasta kona í heimi og drífur alla hluti af með einu handtaki á meðan ég get dundað mér við að mála einn dyrakarm tímunum saman, þar sem ég snýst í kringum sjálfa mig, labba á málningarbletti og ber þá um alla íbúð, rek olnbogana í blauta málninguna og svona. Hlakka líka einstaklega til að fara í IKEA með múttu og grípa einhverja sniðuga sænska muni, og vera snögg að því.
Veit ekki hvað fólk gerir sem á ekki svona góða fjölskyldu!
Athugasemdir
Til lukku með penthousið:) Dáldið gróft af mér að bjóða fram aðstoð og flýja svo bara úr landi,hehe;)
Heyrumst...Köben biður að heilsa;)
Hrund (IP-tala skráð) 20.7.2007 kl. 21:10
Já Gott er að eiga góða að! Ég veit ekki hvar ég væri ef ég hefði ekki mína foreldra tilbúna að redda dóttur sinni hvað sem á dynur. Býst við að íbúðin þín sé núna orðin allt önnur, eins og stormsveipur hafi farið um, ég bið að heilsa ;)
Sólrún (IP-tala skráð) 22.7.2007 kl. 13:18
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.