Stolltur íbúðareigandi

Ég á íbúð!  Keypti mér eitt stykki svoleiðis í fyrradag.  Er byrjuð að mála og svona, er ekkert spes góð í því enda nánast enga reynslu af málningarvinnu.  Er með hvítar málningarklessur í hári og á höndum og öll eitthvað stirð eftir verkið.

Get alla vega loksins upplýst, fyrir þá örfáu sem ekki vita, þá keypti ég mér risíbúð (má ekki kalla það Penthouse?) á Hverfisgötu.  Þetta er 3ja herbergja íbúð, en ógeðslega lítil.  Mjög krúttleg og gamaldags.

Verst að þetta er kannski ekkert spes hverfi, frekar sjabbí og svona.  Treysti þó á það að með innflutningi plebbana í Skuggahverfið í næsta nágrenni muni Hverfisgatan byggjast upp.  Plebbarnir munu ekkert vilja hafa eitthvert hyski í túnfætinum hjá sér og smám saman muni Hverfisgatan plebbast upp.  Þetta gæti þó verið varasöm óskhyggja því að í plebbaaugum er ég eflaust hyski; Hippi á hjóli og hef engan metnað til að verða rík. 

Bráðum verður partý í penthousinu, þá fáið þið útvöldu að sjá dýrðina.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Til hamingju elskan!

 Verður ekki annað partý í sept? Langt síðan ég hef komist í penthousepartý

Sólrún (IP-tala skráð) 19.7.2007 kl. 12:39

2 identicon

Til hamingju!! :) Stórt skref í átt að því að vera fullorðinn og sjálfstæður. Þú verður endilega að skella inn nokkrum myndum af krúttinu þínu. ég myndi glaðlega hjálpa ef ég væri á landinu en pabbi minn þjálfaði mig sem ungling til að mála og er ég nokkuð góð í því þó ég segi sjálf frá hehe. Vonandi muntu eiga mörg hamingjusöm ár þarna í penthousinu þínu :)

Knús

Kristrún (IP-tala skráð) 19.7.2007 kl. 14:22

3 identicon

Til hamingju með höllina. Þú verður að skella inn myndum af dýrðinni :)

Þorgerður (IP-tala skráð) 19.7.2007 kl. 16:10

4 identicon

Mátti til með að óska þér til hamingju með íbúðina!! Ég kíki alltaf á bloggið þitt annað slagið, þú ert svo skemmtilegur penni :o) Við erum að smíða pall fyrir utan hjá okkur núna svo ef þig vantar laghenta smiði þá erum við bráðum laus ... ég er orðin asskoti lagin með skófluna og stingsögina ;o)  Gústi biður kærlega að heilsa.

Halla Skúla (IP-tala skráð) 20.7.2007 kl. 14:21

5 Smámynd: Anna Þorbjörg Jónasdóttir

Takk fyrir það Halla!

ÞEgar ég fer út í stórframkvæmdir bjalla ég bara í ykkur, held samt að það verði í fyrsta lagi eftir 10 ár eða svo, vona að þið haldið ykkur við svo þið verðið til í þetta þá

Anna Þorbjörg Jónasdóttir, 20.7.2007 kl. 15:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband