Lenti á Keflavíkurflugvelli árla morguns eftir einstaklega vel heppnaða ferð til Danmerkur. Mér finnst ótrúlegt að ég hafi bara verið í 5 daga því ég fór út um allt og hitti svo marga og gerði margt. Ferðin byrjaði aðfaranótt fimmtudagsins en við Stína flugum út saman ásamt Eiði Smára og Sveppa. Þeir voru reyndar á fyrsta farrými og við í almúga farrýminu svo við bonduðum ekki sem skyldi. En merkilegt nokk, þykir mér afar hughreystandi að hafa einhvern frægan með mér í flugvél því það þykir mér minnka líkur á flugslysi. Þessi tilfinning mín er að engu rökrétt en engu að síður líður mér alltaf betur að sjá frægt fólk í flugvélinni. En sem sé komumst við heilar til Kaupmannahafnar en þar hittum við Sólrúnu sem flaug frá London. Á einni myndinni má sjá er hún tekur gleði stökk þegar hún sér okkur undir klukkunni góðu á Hovedbanegaard. Við röltum svo um Strikið og fengum okkur Tuborg. Seinni partinn tókum við Sólrún lestina til Århus þar sem við heimsóttum þau Kristrúnu og Frank sem tóku höfðinglega á móti okkur. Kíktum svo aðeins á lífið í Århus sem var stórfínt, þó við höfum ekki blandað mikið geði við innfædda, nema Frank auðvitað. Ég og Sólrún deildum svo dýrindis vindsæng og sváfum þar eins og englar í 2 nætur og má sjá Sólrúnu litlu sofandi hér á mynd. Sumir eru bestir þegar þeir sofa... aðrir ekki. Áttum svo góðan föstudag í sól og blíðu og röltum um borgina. Það hefur verið ömurlegt veður í allt sumar í Danmörku en þegar við vorum lentar tók við bongóblíða.
Fórum svo í brúðkaup á laugardaginn en kem með myndir og söguna í annarri færslu, fer allt í fokk þegar ég set svona margar myndir í einu.
Athugasemdir
ég þakka amk kærlega fyrir mig en það var alveg yndislegt að hafa ykkur gellurnar í heimsókn og ekki sakaði að fá að sjá Sólrúnu berassaða en það er eitthvað sem var daglegt brauð í ansi mörg ár hehe. Hlakkar til að heyra meira um brúðkaupið og jafnvel sjá myndir af brúðinni og svona.
Kristrún (IP-tala skráð) 17.7.2007 kl. 17:31
AHAhah ég sé að ég þarf eitthvað að æfa kúl svipinn betur, svo skemmir líka fyrir að hafa svona lítið kúl svefn svip beint fyrir ofan kúl myndina. En þetta var ógeðslega gaman, ég heimta fleiri brúðkaup! Takk fyrir samveruna allar saman
Sólrún (IP-tala skráð) 18.7.2007 kl. 12:11
Til Sólrúnar:
Myndin á vindsænginni er klárlega jólakortamyndin í ár!
P.s heimta kort
Allý (IP-tala skráð) 19.7.2007 kl. 11:55
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.