Brúðkaup

Nú er ég að fara til Danmerkur aðfaranótt fimmtudags.  Hún Dís litla er að fara að gifta sig þar á laugardaginn, fyrst minna vinkvenna.  Hún eignaðist líka barn á undan öllum öðrum og samt er hún yngst af mínum vinkonum. 

Ég hef aldrei farið í brúðkaup áður, nema mömmu og pabba þegar ég var skírð í leiðinni og man því ekki neitt.  Svo virðist sem enginn vilji giftast fólki sem ég þekki.  Merkilegt.  Vil frekar meina að fólkið sem ég þekki vilji sjálft ekki giftast neinum, það hljómar betur.

Ég er fyrir löngu búin að fjárfesta í pæjukjól fyrir viðburðinn.  Þetta er fremur efnislítil pjatla (án þess að vera eitthvað sjoppuleg samt) þannig að ég bjóst við að vera þarna í bongóblíðu.  Nú lítur spáin svona út; 

 

SPÁ: Kaupmannahöfn

þri. 10.7.

skyjad.gif
skyjad.gif
18° 
12° 
5 m/s 

mið. 11.7.

rigning.gif
rigning.gif
13° 
12° 
6 m/s 

fim. 12.7.

rigning.gif
rigning.gif
14° 
12° 
7 m/s 

fös. 13.7.

rigning.gif
rigning.gif
17° 
12° 
5 m/s 

lau. 14.7.

rigning.gif
rigning.gif
19° 
13° 
6 m/s 

sun. 15.7.

lettskyjad.gif
lettskyjad.gif
21° 
14° 
7 m/s 

 

 

 

 

Ætla að henda því fram að þetta sé bull og vona það besta. 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Anna, ég hef nú hlaupið á eftir þér hálfnaktri í ýmsustu veðrum, Í gamla daga léstu hvorki vind né hagl stöðva þig, þú bara hljópst þeim mun hraðar milli öldurhúsanna. Ég hef heldur ekki farið í brúðkaup áður en skilst samt að það sé lítið um klúbbaskiptingar, sérstaklega þegar brúðkaupið á sér stað út í sveit. Ef veðrið verður þeim mun svæsnara þa bara höldum við okkur innan dyra og reykjum út um gluggann, trúi ekki að daninn fari að segja sig upp á móti því

Sólrún (IP-tala skráð) 10.7.2007 kl. 13:48

2 Smámynd: Anna Þorbjörg Jónasdóttir

Já það er af sem áður var. Áður óð maður snjóinn í opnum sandölum á tánum, í mínípilsi og flegnum bol.  Með aldrinum er maður farinn að klæða sig aðeins meira svona eftir veðri.

Held samt að ég hafi meira verið að hlaupa á milli öldurhúsa ef það var ofankoma sem myndi krulla velslétt hárið.  Hljóp reyndar alltaf heim af djamminu líka með rjúkandi Nonnabita hér á árum áður.  Var sem sé mikið í því að hlaupa hér í denn.  Nú er maður bara bakveikt gamalmenni sem sniglast um göturnar 

Anna Þorbjörg Jónasdóttir, 10.7.2007 kl. 13:56

3 identicon

Ég var í brúðkaupi helgina fyrir hróa og var þar í efnislitlum kjól og háhæluðum skóm...og brúðkaupið var haldið úti og ég svaf í tjaldi! Ég reyndar var með lítinn jakka og svo gammosíur ef illa færi sem ég svo nýtti mér því það var rigning og rok og frekar kalt. Veislan var semsagt haldin í tjaldi sem var ískalt en svo var það hitað upp og svo kom reyndar sólin smá um kvöldið þannig að þetta reddaðist allt saman. Taktu bara með þér regnjakka og svona og þá er allt gott.

Kristrún (IP-tala skráð) 10.7.2007 kl. 14:22

4 Smámynd: Anna Þorbjörg Jónasdóttir

Ekki þykir mér regnjakki skemmtileg flík svona við sparikjólinn :( 

Anna Þorbjörg Jónasdóttir, 10.7.2007 kl. 15:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband