Útilega

Þingvellir (6)Þingvellir (13)Þingvellir (26)Þingvellir (29)Þingvellir (30)Þingvellir (32)Þingvellir (46)Þingvellir (53)Enn ein helgin að verða búin.  Við drifum okkur til Þingvalla, slógum þar upp kúlutjöldunum okkar innan um öll fínu hjólhýsin og tjaldvagnana, drukkum öl, ræddum málin, hlógum, fórum í labbitúra, vorum sakaðar um dólgslæti, ég varð fyrir kríuárás, Stína  fann upp hippabúrka (sjá mynd), urðum fyrir mikilli ásókn mýflugna (sbr. uppfinningu búrkans), hittum hressa gamlingja í Kívanisklúbbi sem vildi endilega fá okkur í partý á laugardagskvöldinu, og ýmislegt fleira. 

 Næsta helgi Danmörk og strönd.  

Lífið er einstaklega hressandi þetta sumarið :) 

Þingvellir (55)


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sætu vinkonur, hvað það hefði verið gaman að vera með ykkur, þetta er útilegan sem okkur tókst aldrei að fara í í fyrra! Kannski næst...

Sólrún (IP-tala skráð) 8.7.2007 kl. 18:05

2 Smámynd: Anna Þorbjörg Jónasdóttir

En svo höfum við planað "Hringinn 2009".  Þá gerum við þetta almennilega, förum allar saman hringinn, tökum nógan tíma í þetta og höfum stuð. Kærastar, eiginmenn og börn (maður veit aldrei) bannaðir. 

Nánar síðar 

Anna Þorbjörg Jónasdóttir, 8.7.2007 kl. 18:09

3 identicon

Verð hreinlega að kommenta á lopapeysuna þína sem mér finnst alveg ótrúlega flott og öðruvísi en þær sem ég hef séð !! Synd ég kunni ekki að prjóna eins og þú- trúi þér til að hafa prjónað hana sjálf :)

Hugrún (IP-tala skráð) 8.7.2007 kl. 20:59

4 identicon

Vonandi færdu strandavedur í Dk,en tad er ekki búid ad vera veitt stranda vedur sídasta mánud.Er samt adiens ad breitasr núna ad ég held.Í dag skín sól en brjálædislega hvast.Vona ad tú fáir góda ferd,vers ad ég sjái tig ekki.Flottar myndir af ykkur vinkvennum

Frída frænka (IP-tala skráð) 9.7.2007 kl. 06:52

5 Smámynd: Anna Þorbjörg Jónasdóttir

Takk Hugrún! Það var einmitt ein kona úr Kívanisklúbbnum sem var líka mjög hrifin. Því miður get ég ekki montað mig af því að hafa gert hana sjálf, er meira í að prjóna sokka og vettlinga.  Það er Inga frænka, prjónasnillingur, sem stendur fyrir henni þessari. Á hana því miður ekki sjálf heldur Elma systir. Á þó örugglega hátt upp í 10 peysur, hver annarri fínni, eftir hana. 

Maja mín, ég treysti því að veðrið muni hafa breyst mér í vil þegar ég lendi á fimmtudagsmorguninn. Getur ekki verið að það verði svona lengi vont veður þarna

Anna Þorbjörg Jónasdóttir, 9.7.2007 kl. 08:34

6 identicon

Hey líst vel á hringinn 2009, Count me in! Þá ætla ég að vera orðin rík, eða alla vega á launum, svo ég get flogið heim og tekið þátt, hvar sem ég verð vinnandi í heiminum! Újé, útilega með stæl!

Sólrún (IP-tala skráð) 9.7.2007 kl. 22:01

7 identicon

hæ Anna! ég var að reyna að senda þér sms í gær en held ekki að ég hafi rétt númer eða eitthvað? Kemuru til mín á fimt? Ég er að verða svo spennt að fá ykkur gellurnar! Kemur sólrún ekki örugglega líka? Vonandi verður veðrið ok en það hefur verið "vetur" seinustu vikurnar og jú það var stormur á hróaskeldu jeijj. Ég lifði þetta þó léttilega af og fannst bara asskoti gaman, aðallega á kvöldin þó og eitthvað minna á morgnana hehe. Ertu annars með númerið mitt og heimilisfang og allt það? Á ég að senda þér email með upplýsingum?

Kristrún (IP-tala skráð) 10.7.2007 kl. 10:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband