Drullupollurinn Hróarskelda

hróarskÍ nokkurn tíma nú fyrr á þessu ári var ég ákveðin í því að fara á Hróarskeldu í sumar.  Þessa ákvörðun tók ég þrátt fyrir það að eldri systir mín hafi frussað af hneikslan þegar ég tilkynnti um þessa ákvörðun mína, því ég væri jú svo gömul.

Eftir að hafa séð drullupollinn þar í fréttunum í gær, þar sem met hefur verið slegið í bleytu og leðju, þá er ég óendanlega þakklát fyrir að hafa hætt við þau plön mín.  Sé mig fyrir mér illa pirraða, blauta í fæturnar, skríða út úr blautu tjaldinu, fara í blautu fötin mín til þess eins að blotna enn þá meira.

Kannski hafði systir rétt fyrir sér, ég er kannski bara allt of gömul fyrir svona lagað. 

Er nú reyndar að fara til Danmerkur eftir tæpa viku.  En þar er ég ekkert að fara að taka þátt í unglingaskemmtun heldur að fara í brúðkaup.  Það er víst voðalega fullorðins. 

 

Ed:  Skipti um mynd, fannst hin of fansí fyrir stemninguna sem þarna ríkir núna. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Já, ég var nú á Hróarskelduhátíð í fyrsta sinn á ævinni um þessa helgi og mér fannst það frábært, þrátt fyrir leðju og óhemju mikla rigningu. Maður verður ekkert of gamall, og það segir sú sem stendur fyrir þessu fullorðinsbrúðkaupi um næstu helgi :-)

Varð eiginlega svo hrifin af þessarri stemningu og fannst svo æðislega gaman að hlusta á tónlist og dansa allan daginn að ég er að velta því fyrir mér að gera þetta að árlegum viðburði (þrátt fyrir að ég sé svo ofboðslega fullorðins, bráðum gift kona med barn í þokkabót)

Hlakka til að sjá þig á laugardaginn

Dís

Dís (IP-tala skráð) 9.7.2007 kl. 20:29

2 Smámynd: Anna Þorbjörg Jónasdóttir

Ætla alveg að prófa að fara þarna einhvern tíma, kannski næst, því þá getur nú bara ekki verið aftur svona mikil rigning.

Annars er ég öll að koma mér í gírinn fyrir þarna fullorðinsleikinn um helgina. Við munum eflaust sýna allar okkar bestu og þroskuðustu hliðar :) 

Anna Þorbjörg Jónasdóttir, 10.7.2007 kl. 08:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband