Að vera töff eða ekki töff

Nú höfum við öll mismunandi skilning á því hvað er töff og hvað er það alls ekki. Þetta kemur líklegast með uppeldinu.  Ég reyni nú að vera umburðarlynd og ekki dæma fólk en á oft erfitt með mig. 

T.d. þegar ég var að hjóla á Laugarveginum heim úr Bónus í gær (sem mér finnst t.d. mjög töff en örugglega ekki öllum), var á undan mér Honda Civic.  Allir muna nú eftir svoleiðis, það var voða gæjalegt að eiga svoleiðis bíl á rúntinum á Akureyri hér í denn.  Honda Civic gæjar voru sérstök tegund sem þótti svo sem ekki sérlega eftirsóknarverð á mínum bæ, en þó hjá einhverjum.  Ég giska á að bílstjóri Hondunar hafi verið á að giska rúmlega þrítugur.  Aðeins eldri heldur en Civic gaurarnir í gamla daga.  Hann var með há kollvik og nokkuð bústinn.  Hann var líka með rúðurnar niðri og Eminem í botni og gelgjulagið "Shake that ass for me" hljómaði um allan Laugarveginn.  

Ég fór þá að velta því fyrir mér hvort honum finnist hann fáránlega töff?  Og eru einhverjar pæjur sem finnst þetta töff gæji.  Hugsa þær kannski með sér að þetta sé nú meira en kúl gæji sem lætur aldurinn ekki stoppa sig í að njóta lífsins og hlusta á "góða mússík í flottum bíl"? 

 Maður spyr sig...


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ætli þetta sé ekki vinur gaursins sem ég mætti á bíl í gærkveldi með einkanúmerinu BLOW ME.... Hvernig getur nokkur maður fengið sig til þessa??!!!

Stína (IP-tala skráð) 5.7.2007 kl. 18:39

2 identicon

Ég hef lúmskt gaman af mönnum sem hegða sér engan vegin í samræmi við aldur eins og þann sem þú sást á Laugarveginum. Reyndar finnst mér allir þeir sem eru hreinskilnir varðandi hvað þeim þykir töff vera nokkuð töff, sérstaklega þegar engin innistæða er fyrir því hjá viðkomandi að lifa eftir því sem honum þykir töff. Til þess þarf viðkomandi að skarta dýrari gerðinni af hreðjum eða vera í trosnuðum tengslum við raunveruleikann. Báðar týpurnar eru bráðskemmtilegar og hressist ég mjög við að horfa á þá. Það á ekki að gagnrýna slíka menn heldur lofa. Þetta eru hversdagshetjur.

Bjarki Þór Baldvinsson (IP-tala skráð) 5.7.2007 kl. 21:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband