En eins skemmtileg og helgin var þá var dagurinn í dag einstaklega erfiður. Keypti mér eitt stykki þvottavél í gær og þurfti að koma henni inn í nýju íbúðina mína. Ég fékk aðstoð þeirra öðlinga, Stínu og Palla. Palli greyið lenti nú mest í því að bera ferlíkið upp brattan stigann og ég og Stína þvældumst svona mest fyrir. En eftir nokkra herki komum við draslinu upp (ég sver að þetta var hátt upp í tonn á þyngd). Þegar þessum æfingum var lokið fór ég að finna til í bakinu sem versnaði svo með kvöldinu og í nótt gat ég eitthvað lítið sofið. Sem betur fer var ég með lánaðan bíl hjá afa og ömmu eftir þvottavélaskutlið því annars hefði ég aldrei komist til vinnu í morgun. Var í meira lagi bækluð í morgun þegar ég skakklappaðist um vinnustaðinn, skekkri en blessaður turninn í Písa, og í hádeginu leist samstarfskonu minni ekki betur á ástandið en svo að hún hringdi í lækninn sinn og heimtaði fyrir mig tíma og sendi mig heim. Þess ber að geta að ég fer aldrei til læknis. Hef einu sinni farið til heimilislæknis á ævi minni (þ.e. eftir að ég hætti að vera örviti; sem sé smábarn) og svo fer ég reglulega í hið sískemmtilega krabbameinstékk. Mér finnst það bara fyrir aumingja að fara til læknis þegar eitthvað bjátar á. Nema auðvitað fólk sé við dauðans dyr eða eitthvað slíkt, þá er því guðvelkomið að leita sér lækninga. Ég þorði þó ekki annað en að fara til læknisins þar sem hin indæla samstarfskona var búin að redda mér tíma í gegnum alls kyns krókaleiðir, ljúga um hvar ég byggi og svona, því miðbæjarfólk á ekki auðvelt að fá tíma hjá lækni.
Eins og mig grunaði gerði læknirinn ekki neitt nema að segja mér það sem ég þegar vissi, að ég væri tognuð í bakinu. Hann teygði þarna eitthvað á mér, sagði mér að taka verkjalyf og bannaði mér að bera þunga hluti næstu daga. Frábært, þar sem ég er að fara að flytja. Vinir mínir eru örugglega afar spenntir að hjálpa mér að flytja vitandi þetta. Áhugafólk um að bera hluti er því velkomið að hafa samband við mig og hjálpa mér við burðinn.
Flokkur: Bloggar | 2.7.2007 | 19:33 (breytt kl. 19:47) | Facebook
Athugasemdir
Já verst að þú ert ekki með svona massívt flutninga-gengi eins og ég var með þegar ég flutti í Lönguhlíðina ;)
Agla (IP-tala skráð) 3.7.2007 kl. 11:37
Ohhh til hamingju með nyju íbúðina!!! Hlakka mikið til að sjá hana! og allar þessar færslur sem ég er búin að missa af að kommenta á, fæ þvílíkt nostalgíukast að sjá myndirnar af ykkur í nauthólsvík og Austurvelli. Vildi að ég hefði verið með ykkur, það var gott að búa í Reykjavik, og það er mjög gott bland í poka bæði í bónusvídjó og ríkinu, þú þarft ekkert að líta til svíþjóðar (þó það sé kannski aðeins billegra). Þú ert eflaust orðin kúkabrún stelpa, Í líberiu var bara regntímabil og ég jafn hvít sem áður, en alla vega, ég kem heim í sept til að kíkja á íbúðina áður en ég fer til malawi, látið það fréttast, ég ætlast til að það verði stuð í Sódómu! Farðu vel með bakið vinan
Sólrún (IP-tala skráð) 3.7.2007 kl. 12:52
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.