Meira af sænsku sælgæti

nammiHorfði á finnskan ferðaþátt í gær en sá var um mið Svíþjóð.  Fékk smá eftirsjá að hafa flutt frá Stokkhólmi þegar ég sá myndir frá þeirri fögru borg.  Mér fannst Finnarnir þó heldur neikvæðir í garð Svía með að segja þá tala of mikið og gera of lítið, saka þá um að lifa enn á fornri frægð stórveldis síns og banna fólki að skara fram úr.  Varð móðguð fyrir hönd frænda minna Svía.  

Næsti þáttur er frá Danmörku og verður spennandi að sjá hvaða dóm Finnarnir gefa Dönunum.  Ég hef nú einnig búið í Danaveldi eins og annar hver Íslendingur, og verð nú að segja það að Svíarnir fá mun hærri einkunn frá mér en baunarnir.  Rasískara fólki hef ég aldrei kynnst og eftir að hafa orðið nokkrum sinnum fyrir afar leiðinlegum athugasemdum í minn garð fyrir að vera útlendingur í þeirra landi, hef ég pínu illan bifur af Dönum.  En auðvitað er ég nú ekki svo vitlaus að ætla það að allir Danir séu eins, en almennt séð líkar mér mun betur við Svía en Dani.  

En alla vega, ég ætlaði víst að tala um nammi, godis, slik eða gotteri eftir því hvar maður er staddur á Norðurlöndum.  Í þættinum kom fram að Svíar ætu mest allra í heiminum af blandi í poka.  Ekki kemur það svo sem á óvart enda landið afar gott búsetu fyrir áhugafólk um blandið í pokanum.  

Þegar ég flutti fyrst til Svíþjóðar þegar ég var Nordjobbari, komst ég fyrst í kynni við blandið sem er það ódýrasta og besta sem ég hef komist í tæri við.  Sumarið var því gegnsýrt að sælgætisáti og bókalestri í sólinni.  Afar góðir tímar.  Fannst reyndar ekki alveg jafn skemmtilegt að koma heim nokkrum kílóum þyngri eftir allt átið.  Skil ekki hvernig sænsku gellurnar geta allar verið svona mjóar með allt fljótandi af dýrindis lös-godis í kringum sig á spottprís.  Þetta sýnir vel hve miklum eiginleikum Svíarnir eru gæddir; sjálfstjórn á heimsmælikvarða.  Alla vega höndlaði Íslendingurinn ég afar illa að standast ómótstæðilegan nammibarinn. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband