Kex Choklad

kexEf það er einhvers sem ég sakna frá Svíþjóð er það þetta sælgætisstykki sem má sjá hér til vinstri.  Nú er ég svo heppin að eiga góða vini sem hafa gott aðgengi að þessu góssi og fékk ég sendingu af slíkum stykkjum frá Svíþjóð í seinustu viku.  Ég gat glatt þær systur Stínu og Laufeyju og gefið þeim sitthvort stykkið og hef ég sjaldan séð svo góð viðbrögð við jafn lítilli gjöf.  Nostalgískar minningar úr sænskri æsku þeirra systra mátti lesa úr andlitum þeirra er þær gæddu sér á Kexinu (sem er í ætt við Prins Póló, bara betra).  Ég hvet því sælgætisinnflytjendur landsins að kynna sér mögulegan innflutning á þessari vöru.  Ég get tryggt það að viðbrögðin yrðu góð.  

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Man ekki betur en ég hafi innbyrt nokkur svona súkkulaðistykki á mínum sænska námsferli. Þetta slær auðvitað við öllu sjúklaðs-keksi sem fæst á Íslandi, en hluti af ástæðunni fyrir því hlýtur að vera að þetta fæst einmitt ekki á Íslandi.

 Eina ástæðan til að fara í sænskt tívólí er svo að fara í lukkuhjól þar sem verðlaunin eru mannhæðarhátt cloetta keks. Ég vildi alltaf að þetta væri bara eitt stórt keks í umbúðunum, en síðan hrundi mín barnslega tilvera þegar ég komst að því að stóra keksið inniheldur bara mörg lítil venjuleg keks. Mjög mikil vonbrigði.

f.willy (IP-tala skráð) 27.6.2007 kl. 01:32

2 Smámynd: Anna Þorbjörg Jónasdóttir

Ég kannast við þessi risa kex, á einmitt góða mynd af svoleiðis sem ég set inn þegar ég kemst í mína eigin tölvu.  Kannast líka við þau vonbrigði þegar ég komst að því að þetta voru bara fullt af litlum, fannst hugmyndin um að narta í risastykkið afar heillandi.  Hef reyndar aldei orðið svo heppin að vinna svoleiðis, reyndi mig í einhverju svona hjóli en vann bara lítið Center; ömurlegt svindl

Anna Þorbjörg Jónasdóttir, 27.6.2007 kl. 08:41

3 identicon

...sem er reyndar annað guðdómlega gott sænskt nammi sem mætti alveg flytja inn til Íslands! Áfram Cloetta!!

Stína (IP-tala skráð) 27.6.2007 kl. 09:42

4 Smámynd: Anna Þorbjörg Jónasdóttir

Komst aldrei almennileg inn í Non-stoppið, man ekki einu sinni eftir að hafa smakkað það. 

En verði þér kexið að góðu :) 

Anna Þorbjörg Jónasdóttir, 28.6.2007 kl. 08:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband