Er annars komin með íbúð. Á eftir að græja lánið endanlega og skrifa undir kaupsamning. Seljandi hefur þó skrifað undir kauptilboð mitt svo þetta ætti að vera nokkuð öruggt. Þori þó ekki að skrifa meira um þetta í bili ef eitthvað kæmi upp á og ég þyrfti að bera allt tilbaka. Get þó sagt að ég mun ekki yfirgefa 101 í bili.
Nánar síðar.
Athugasemdir
Vá til hamingju með það :) Geggjað! þá hefur maður kannski stað til að sofa á næst þegar ég kem til Reykjavíkur ;) Er þaggi? Gangi þér vel með þetta samningamaus :) knús K
Kristrún (IP-tala skráð) 21.6.2007 kl. 12:24
Að sjálfsögðu færðug gistingu. Þetta er 3ja herbergja þannig að ég verð með nóg pláss ... þó ekki sé hún stór í fermetrum talið
Anna Þorbjörg Jónasdóttir, 21.6.2007 kl. 12:41
Jæja, nuna er eg ekki lengur mest radsetta gelgjan i genginu... ;o) Thu kominn med fasteign, fasta stødu og allt! Til hamingju med thetta, hlakka rosa til ad koma i heimsokn!
Thorhildur (IP-tala skráð) 22.6.2007 kl. 07:23
Held að við séum í svolítið spes vinkvennahóp ef ég fæ titilinn sem sú mest ráðsetta. En engu að síður gaman að hafa þann virðulega titil, verst að ég er ekki að kaupa í Vesturbænum því þá væri ég ráðsett húsfreyja í Vesturbænum sem er mun virðulegra en í miðbænum
Anna Þorbjörg Jónasdóttir, 22.6.2007 kl. 13:59
Til hamingju. Er þetta sú íbúð sem rætt var um yfir einu rauðvínsglasi?
Habbý (IP-tala skráð) 22.6.2007 kl. 17:53
Mikið rétt,það er sá kofi
Anna Þorbjörg Jónasdóttir, 23.6.2007 kl. 18:47
Til hamingju með tilvonandi íbúðakaup og miðbæjarrottutitil. Það er samt stórhættulegt fyrir þig að eiga þriggja herbergja þar sem það vekur freistingar um að sníkja gistingu ef manni þykir of langt í heimahagana sökum ölvunar. Þar sem þú ert vinamörg og vinirnir drykkfelldir held ég að þú þurfir að setja upp svona styrktar vöruhillur eins og þeir eru með á Eimskip í herbergið þar sem þú getur staflað félögunum. Svo verðurðu náttúrulega að starfrækja súpueldhús fyrir liðið þegar það vaknar.
Bjarki Þór Baldvinsson (IP-tala skráð) 25.6.2007 kl. 02:44
Takk Bjarki minn fyrir það. Hef þegar hugsað fyrir því að hrekja frá drykkfelda vini sem ekki nenna að koma sér heim af tjútti. Mun flytja litlu systur mína inn í aukaherbergið og trúðu mér, hún mun ekki líða neitt drykkjufólk í sínum húsum. Verð því að valda þeim vonbrigðum sem voru farnir að hugsa sér gott til glóðarinnar.
Anna Þorbjörg Jónasdóttir, 25.6.2007 kl. 08:26
Ef þú hefur áhyggjur af því að vera orðin of fullorðin þá geturðu fullorðins-jafnað íbúðakaupin með því að fá þér leikjatölvu eða trampólín.
f.willy (IP-tala skráð) 27.6.2007 kl. 01:35
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.