Áður en ég byrja þessa færslu sé ég mig þess knúna til að taka það fram að ég er ekki sérstakur talsmaður reykinga. Ég hef ekki verið keðjureykingamanneskja frá blautu barnsbeini né dreg ég skaðsemi reykinga í nokkurn efa. Að því sögðu ætla ég að segja ykkur sögu.
Ég var í fyrradag að labba upp Laugarveginn en ég var að fara að sinna erindum í nokkurri fjarlægð frá heimili mínu. Eins og venjulega eru margir bílar að aka í tilgangsleysi niður Laugarveginn. Ég reyni nú að sýna slíku nokkurn skilning enda stundaði ég mikið þá iðju að keyra stefnulaust um hér á árum áður. Þegar ég hins vegar sá aka hjá anti-reykingamógúlinn Þorgrím Þráinsson á risastórum Land-cruiser jeppa fór ég að velta svolitlu fyrir mér. Hvernig stendur á því að réttur þeirra sem kjósa að eiga ekki bíl er ekki virtur um að geta gengið frjáls um götur borgarinnar án þess að verða fyrir mengun af ýmsu tagi af hendi þeirra sem keyra um vilt og galið. Ég man ekki betur en að í vetur hafi varla verið um annað rætt en skaðsemi svifryksmengunar á öndunarfæri fólks, ekki ósvipað og reykingar gera. Megum við sem kjósum að eiga ekki bíl krefjast þess að komið verði á bíllausum hverfum svo við getum stundað þá iðju að ganga eða hjóla án þess að eiga á hættu að anda að okkur þeirri mengun sem akstur bíla veldur?
Ég skal hins vegar lofa ykkur því að ef einhver myndi viðra þá hugmynd að fólki yrði bannað að keyra eða settar skorður af einhverju tagi, yrði sá hinn sami umsvifalaust sakaður um fasisma að verstu gerð. Mér finnst hins vegar allt í lagi að fólk velti því fyrir sér hvaða rétt það hefur til að keyra um á bílum sínum án þess að íhuga það hvaða áhrif það hefur á okkur hin. Kannski ég ætti að gerast Þorgrímur Þráinsson anti-einkabíls fólksins og koma af stað herferð til að útrýma einkabílum, er hvort eð er löngu orðin vön því að fólk saki mig um öfgar. Ætli ég verði samt ekki að byrja á því að skrifa hittara unglingabók svona til að ná vinsældum og skapa mér trúverðugleika áður en ég hef herferðina. Það virkaði alla vega fyrir Þorgrím.
Athugasemdir
Mikid rétt hjá tér Anna.Hvernig væri ad tú skrifadir barna-bíla bók um græna og rauda bíla
Sjálv ek ég um á grænum yaris(ad vísu er bíllinn grár á litinn)Tessi jeppa mengun á Ìslandi er hryllilegt snobbvandamál sem er ad vísu adeins ad birja hér í dk,allavega tek ég eftir ad tad eru fleiri jeppar hér á gøtum sídustu ár.Sá um daginn á tvo risa Jeppa med mega stóra tjaldvagna í trogi og viti menn íslenskar númerapløtur
Frída frænka (IP-tala skráð) 21.6.2007 kl. 09:28
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.