Akureyri

Aðallega stúdentinn 043Aðallega stúdentinn 058Aðallega stúdentinn 072Aðallega stúdentinn 087Aðallega stúdentinn 099Um helgina fór ég til Akureyrar í þeim tilgangi að vera við útskrift litlu systur úr MA. 

Byrjaði reyndar helgina á því að sitja úti í garði á föstudagskvöldið með þeim eðalstúlkum Hrafnhildi og Kristínu þar sem við dreyptum á rauðvíni og ræddum ýmis mál, misgáfuleg.  Langt er um liðið síðan ég hef hitt hana Habbý þannig að það var einstaklega hressandi.  Og á eftir fórum við Karólínu, kemur e.t.v. ekki á óvart enda ekki oft sem maður sækir sér skemmtun neðar í bænum en þar þegar komið er til Akureyrar.

Á 17. júní var svo útskriftin sjálf þar sem hver júbilantinn af öðrum hélt hugljúfa ræðu um yndislega MA daga.  Fór einmitt að spá í hvað ég myndi segja ef ég yrði beðin um að halda svona ræðu (sem verður þó aldrei) en ég veit ekki hvað ég myndi segja, finnst ég einhvern veginn ekki muna neitt hvað ég gerði þarna í 4 ár.

Systir mín er sú klárasta í bransanum, alla vega í uppeldisfræði og sálfræði enda fékk hún verðlaun fyrir framúrskarandi námsárangur í þeim greinum.  Ég er nú formlega orðin heimskasta systkinið af Austurbyggðarbörnum enda með hálfslappa meðaleinkunn úr MA og engin verðlaun.  Vona bara að Egill litlir bróðir fari að slaka á í náminu og taki af mér þennan leiðinlega titil.

Ég myndaði sætu stúdentana í bak og fyrir og set hér nokkrar myndir.  Svo má hér líka sjá mynd af 8 ára stúdentinum litla mér með nýstúdínunni.  "Því miður" gat ég ekki skellt á mig svarta kollinum því hann er víst undir þeim hvíta hjá þeirri nýútskrifuðu. Við erum svo einstaklega nýtin fjölskylda sjáiði til.  Þessu hugsaði ég fyrir þegar við fleygðum hvítu kollunum upp í loft á 1 árs stúdent í einhverju ölæði og kaós.  Ég hirti tvo af gólfinu svona til að vera viss um að alla vega annar passaði aftur á húfuna svo hægt væri að nota hana á litlu systkinin.  Held að flestir séu fegnir að þurfa ekki að punga út stórfé fyrir sailor húfu sem notuð er 1-2x á ævi.

Annars var skrítið að vera í höllinni í gær og horfa á glaða og reifa nýstúdenta.  Komst í hálfgert tilfinningalegt uppnám því mér finnst svo stutt síðan ég var í þeirra sporum sjálf, full væntinga til lífsins sem ég hafði fulla trú að myndu rætast.  Ég ætla nú ekki að segja að líf mitt hafi verið eitthvað ömurlegt síðan þá en kannski pínu öðruvísi en ég hélt þegar ég dansaði í Höllinni 1999 með hvítan koll.

Annars er eitt sem ég þoli ekki við MA.  Helvítis Hesta-Jóa.  Hverjum datt í hug þetta helvíti? 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæt systir þín;)

Hvað ertu að spá að dissa Hesta Jóa?!

Allý (IP-tala skráð) 19.6.2007 kl. 09:55

2 Smámynd: Anna Þorbjörg Jónasdóttir

Já, hún er sæt stelpan.  Nú er hún sem sé bæði sætari og klárari en ég.  Fúlt

Æji, Hesta Jói, finnst það eitthvað sjúklega vandræðalegt allt saman.   

Anna Þorbjörg Jónasdóttir, 19.6.2007 kl. 12:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband