Eldri borgarar

old peopleHljóp í skarðið fyrir hana Stínu vinkonu mína í gær sem miðasölustúlka á jazztónleikum á Domo.  Stína er einmitt að planta trjám fyrir austan og þannig hjálpa okkur hinum við að líða betur yfir því að menga eins og bjánar.  Vona að hún planti nokkrum hríslum niður fyrir mig og kolefnisjafni þannig flugferðina sem ég er að fara í á eftir til Akureyrar.

Alla vega, þá var ég að selja miða inn á þessa tónleika.  Ég hafði fengið upplýsingar um það að ellilífeyrisþegar fengju helmings afslátt.  Ekki flögraði mér það að það myndi valda mér miklum erfiðleikum.  Hins vegar olli þetta ákvæði í miðasölunnni mér miklu hugarangri þegar líða fór á kvöldið.  Ég hef áður unnið við störf sem krefjast þess að ég þarf að hafa auga með því að viðskiptavinirnir hafi náð vissum aldri, þ.e. áfengiskaupaaldri.  Stundum fannst mér erfitt að sjá hversu gamlir þeir væru og lenti stundum í því að spyrja hálfþrítugt fólk um skilríki.  Það þykir flestum held ég allt í lagi.  Enda þykir unglegt útlit æðra hinu ellilega.  En í gær þótti mér afar erfitt að spyrja fólk hvort það væri ellilífeyrisþegar.  Það er örugglega ekkert gaman fyrir sextuga fína frú sem hefur klætt sig upp á til að fara á fíneríis tónleika að vera sökuð um það að vera ellilífeyrisþegi.  Það endaði því þannig að ég spurði ekki neinn af ótta við að skemma fyrir einhverjum kvöldið.  Held að það hafi verið ágæt lausn í stöðunni þó að e.t.v. hafi ég þannig haft af einhverjum 500 kallinn sem eldri borgararnir áttu rétt á.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Já mér finnst nú allt í lagi að borga 500 kall fyrir nokkur ár niður á við ;)

Hlakka annars til að hitta þig um helgina!!

Agla (IP-tala skráð) 15.6.2007 kl. 10:09

2 identicon

Þú ert nú meiri kapítalistinn að vera að græða svona á gamla fólkinu!

Bjarki Þór Baldvinsson (IP-tala skráð) 15.6.2007 kl. 18:37

3 Smámynd: Anna Þorbjörg Jónasdóttir

Er nú ekki fræg fyrir annað en að vera sérlega kapitalísk eða hvað?

Anna Þorbjörg Jónasdóttir, 16.6.2007 kl. 22:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband