Þá er komið út úr greiðslumatinu. Eins og áður segir verða ekki fest kaup á neinni glæsivillu heldur mun ég þræða kjallarholur í miðbænum í leit minni að draumaeigninni. Það er eins gott að ég er ekki alin upp við mikla efnishyggju og hef ekki miklar kröfur um sérhannaðar innréttingar eða að ég hreinlega verði að fá mér náttúrustein á gólfin. Ef það væri krafa mín gæti ég allt eins gleymt því að vera í þeim hugleiðingum að kaupa íbúð.
Annars verð ég aðeins að pirra mig yfir því hvað ungt fólk í dag er óheyrilega snobbað og kröfuhart um híbýli sín. Allt þarf að vera tipp topp frá fyrsta degi, jafnvel svo fínt að Innlit/útlit vill endilega koma í heimsókn og heyra hvernig þú gast orðið þér út um þessa rosalega fínu sérsniðnu glerplötu sem er bak við eldhúsinnréttinguna og þú getur þá svarað til að strákarnir í Húsasmiðjunni hafi hjálpað þér með þetta allt saman og útfært innréttinguna algjörlega eftir þínu höfði. Og ekki má auðvitað gleyma blöndunartækjunum sem voru sérpöntuð frá Ítalíu og eru alveg brilliant.
Einhvern veginn finnst mér það hinn eðlilegasti hlutur að húsnæðið sem þú velur þér sé staður þar sem þú ætlar þér að búa í einhver ár. Því sé það sjálfsagt mál að þú munir smám saman ditta að hinu og þessu á meðan þú ert að safna þér fyrir því. Nógu mikið ertu búin að fá lánað frá bankanum bara til að kaupa sjálft húsnæðið. Það væri auðvitað voðalega gaman að búa í hinni fullkomnu íbúð frá fyrsta degi en algjörlega stórbrenglað að það skuli þykja sjálfsagður hlutur.
Foreldrar mínir hafa í gegnum tíðina sýnt mér gott fordæmi en þegar þau keyptu Austurbyggðina leit hún út eins og þar byggju áttræð gamalmenni, enda var seljandinn æði aldinn. Í nokkurn tíma bjuggum við í dimmvínrauðri stofu og með rósóttu gólfteppi og merkilegt nokk höfðum það ljómandi fínt þrátt fyrir þessi ósköp. Eftir að hafa búið þarna í ein 17 ár lítur kofinn nú ágætlega út en það gerðist ekki á einum degi.
Nægjusemi er sem sé boðskapur dagsins og er ég nú að reyna að sannfæra sjálfa mig mest af öllu um þá ágætu dyggð enda verð ég reyna að peppa mig upp í að vera móttækileg fyrir þeim hræsum sem Landsbankinn ætlar í góðmennsku sinni að bjóða mér upp á.
Athugasemdir
Rosalega er ég sammála þér!! Að mínu mati er hugmyndin um að flytja í glænýja íbúð með öllu nýju og fínu ótrúlega boring. Mér finnst innrétting vera þróun og ætti að fylgja þér sem persónu. Mér finnst líka svo sorglegt að fólk hamast við að eiga það flottasta hverju sinni og endar svo með að henda út heilu innbúi því það er outdated. Oft finnst mér þeir sem eiga allt það nýja og flotta líka vera þeir sem eiga erfitt með að vera creative í að gera huggulegt heima hjá sér og láta því tískustraumana algjörlega ráða því hvað verður fyrir valinu hverju sinni. Ég er alveg viss um að þó að þú fáir einvherja litla holu til að búa í þá muntu ná að gera hana huggulega og þægilega að vera í. Ekki gefast upp strax Anna mín ég hef fulla trú á því að þú munir finna eitthvað lítið og krúttlegt. Hvað má annars íbúðin kosta? Ohh hvað ég öfunda þig samt að eignast kannski þitt eigið, það er sko minn allra stærsti draumur núna.
Kristrún (IP-tala skráð) 14.6.2007 kl. 12:09
Gaman að fá góðar undirtektir og að ekki hafa allir fallið efnishyggjupúkanum á vald.
Fólk er víst alltaf svo viðkvæmt fyrir peningum svo mér líður hálf undarlega að vera að gaspra því fyrir hvern sem er að sjá hve mikið bankinn vill lána mér. Gef þér þraut til að reikna það út. Hugsaðu töluna sem er húsnúmerið á seinustu íbúðinni þinni í Reykjavík og bættu við 2, þá ertu komin með upphæðina!
Anna Þorbjörg Jónasdóttir, 14.6.2007 kl. 12:14
haha Anna þú ert sniðug í gátugerð! Hérna í Aarhus gætiru fengið mjög krúttlega einsherbergis íbúð fyrir þessa peninga en ekki tveggja herbergja íbúð. Vonandi finnur eitthvað næs! :)
Kristrún (IP-tala skráð) 14.6.2007 kl. 14:49
Ef þú gefst upp á markaðnum máttu gjarnan leigja íbúð mína á Lokastígnum Anna;) Hún losnar 1. ágúst... Gangi þér annars vel að leita;)
Sigurbjörn (IP-tala skráð) 14.6.2007 kl. 15:27
Þú segir nokkuð Sigurbjörn...Hringi kannski í þig á morgun og tékka á þér. Er að fara að skoða 2 holur á eftir, ef ég fyllist hryllingi þá íhuga ég alvarlega tilboð þitt
Anna Þorbjörg Jónasdóttir, 14.6.2007 kl. 15:46
Gangi þér vel við leitina vinan, það verður spennandi að kíkja í heimsókn í holuna þegar að því kemur. Er annars alveg sammála, finnst fátt eins óspennandi og fullkomlega stíliseruð heimili, er alfarið á móti of miklum stíl!
Sólrún (IP-tala skráð) 14.6.2007 kl. 18:03
Íbúðin þín gamla á Fálkagötunni er einmitt til sölu Sólrún mín, skelli mér kannski bara á hana enda ekki mikill stíll á þeirri íbúð. Reyndar búið að mála bleiku eldhússkápana. Skoðaði annars ógeðslega krúttlega íbúð í gær sem mig langar svo mikið í. Finnst þetta bara eitthvað svo erfitt að taka svona stóra ákvörðun ein.
Anna Þorbjörg Jónasdóttir, 15.6.2007 kl. 08:17
Ég myndi ráðleggja þér að fá einhvern til þess að koma með þér að skoða sem hefur staðið í þessu áður. Það munar öllu... Ég man hvað ég varð ógeðslega stressaður þegar ég var að standa í þessu fyrir 3 árum (shit hvað það er langt síðan!) en svo bara blessast þetta allt. Ég fékk einmitt frænku og frænda með reynslu með mér og það hjálpaði mikið. Aftur, gangi þér vel!
sigurbjörn (IP-tala skráð) 15.6.2007 kl. 18:46
Takk Sibbi fyrir það. Er annars búin að fá afa til að kíkja á eina íbúðina með mér því ég veit ekki neitt í minn haus.
Heyri samt kannski í þér með leigu á þinni íbúð ef að draumaíbúðin mín verður seld í næstu viku. Hata þetta kapphlaup í kringum íbúðarkaup, ekki gott fyrir stressuðu mig
Anna Þorbjörg Jónasdóttir, 16.6.2007 kl. 22:59
Koddu bara í glitni og málið dautt. Ég skal redda góðu mati á þig. En að öllu gamni slepptu þá skaltu passa mjög vel að skoða alla króka og kima. Draga húsgögn frá veggjum til að skoða raka (ef um kjallaraíbúð er að ræða). Lenti sjálfur í rakaskemmdum í minni fyrstu íbúð á Reynimelnum. Sturta niður til að tékká vatnsrennsli og slík nördaráð eru góð þótt manni kannski líði bjánalega á staðnum þá ertu að tryggja þig gegn leiðindum í framtíðinni. Gangi þér vel.
Siggi 4b (IP-tala skráð) 20.6.2007 kl. 10:47
Hæ Siggi!
Gaman að heyra frá þér...Langt um liðið frá því maður hefur rekist á þig. Er komin með lán í Landsbankanum enda minn banki frá fæðingu. Fékk svo sem ágætis lán þar svona miðað við litla sem enga eignastöðu. Er líka búin að gera kauptilboð sem hefur verið samþykkt. Fékk afa gamla sem er smiður til að kíkka á þetta með mér og leyst honum vel á og ég verð að treysta honum. Fattaði reyndar ekki þetta með klósettið, verð þá bara að krossleggja fingur :)
Anna Þorbjörg Jónasdóttir, 20.6.2007 kl. 10:52
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.