Illfyglið kría

kríaÞað er eitt dýr sem hræðir mig meira en nokkurt annað í þessu lífi.  Þetta er ekki stórt og mikið rándýr sem getur tætt mann í sig á örskotsstund.  Dýrið sem um ræðir er þó afar árásagjarnt og leggur til atlögu að höfðum fólks svo oft þarf að láta sauma í hársvörðinn.  Þetta dýr er sem sé litli, sæti fuglinn kría.  Þegar ég mæti slíkum dýrum stífna ég upp og út sprettur kaldur sviti.  Til þessa hefur mér tekist ágætlega að forðast þetta óargadýr einfaldlega með því að vera ekki mikið að þvælast úti í móa á varptíma.  Þeir tímar eru þó liðnir.

Í gær fór ég í afslöppunargöngu í kringum Tjörnina og í Hljómskálagarðinum, sem er í Reykjavík, ekki úti í móa.  Ekki leið á löngu þar til ég sé illfygli af þessari tegund sitja á stéttinni fyrir framan mig.  Fyrst hélt ég að um smávaxinn hettumáv væri að ræða enda nóg af þeim á þessu svæði.  Síðan hóf illfyglið sig til flugs og byrjaði að sveima ögrandi yfir mér.  Eins og fífl fór ég að veifa höndunum yfir höfði mér en það ku víst vera góð leið til að fá ekki gogg í hausinn.  Ég þorði ekki að halda áfram og snéri við á staðnum með taugaveiklunarkippi um mig alla.  Helvítið elti mig langa leið og reyndi ég sem mest mátti að halda kúlinu þegar ég mætti stórum hópi fólks.  En það er erfitt að vera kúl þegar hendurnar sveiflast ósjálfrátt fyrir ofan hausinn á manni og maður hefur hræðsluglampa í augum.

Í morgun þegar ég hjólaði yfir Tjörnina sá ég fleiri svona skepnur og fyltist aftur panikk.  Þar sem ég var á hjóli var erfitt að sveifla höndunum.  Þarf greinilega að byrja aftur að æfa mig að hjóla án þess að nota hendur nema auðvitað að þetta sé enn ein ástæðan til að fá mér hjálm.  Eins hallærislegt og mér finnst að vera með hjálm er alveg spurning um hvort það sé ekki skárra en að sveifla handleggjunum tilviljanakennt í allar áttir. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þú ert snillingur.

Siggi 4b (IP-tala skráð) 20.6.2007 kl. 10:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband