Mánudagur

Þá er enn ein helgin afstaðin.  Á föstudaginn kom hún Þórhildur í helgarferð til landsins frá Noregi.  Eldhúspartý var þá haldið hjá mér á Halló og kíkt aðeins út eftir það.  Á laugardaginn kom Gunna frá Akureyri á leið sinni til Parísar og var því aftur boðið til eldhúspartýs á Halló.  Myndi ætla að Júlla á efri hæðinni þyki ég einkar skemmtilegur nágranni.  Við erum samt fremur prúðar stúlkur og býst ég við að lætin hafi ekki farið úr öllu valdi.  Lítið annað var því gert um helgina en að taka á móti gestum og svo vaska upp eftir þá.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband