Mér finnst eins og ég sé orðin styrktaraðili Flugfélags Íslands. Á einum mánuði mun ég brátt hafa flogið fimm sinnum milli Ak og Reyk. Og það er ekkert ókeypis að gera það.
Ég er sem sagt að fara í útskrift litlu systur frá MA þann 17. júní. Hef traustar heimildir fyrir því að ekki sé boðið upp á hið margrómaða moðsteikta lambalæri sem var að ég tel á boðstólnum í öllum MA samkomum sem ég hef tekið þátt í. Einhver nýjungagirni hlaupin í þá Bauta-menn.
Flokkur: Bloggar | 6.6.2007 | 11:03 (breytt kl. 11:04) | Facebook
Athugasemdir
Vid høfum øll verid styrktaradilar ad Flugfélafi Ìslands,tetta hefur verid
einokunarflugfélag og gétad stjórnad sínum prísum á milli stada á Íslandi.
Tad er hægt ad fá far frá køben til åalb,fyrir 3000,kr ísl,Sterling birjadi med tetta,en nú er SAS komid med lægri fargjøld,,,,,,tad vanntar bara samkeppni.Lestarmidi fra Køben til Åalborg kostar adra leid 360, dkr, hvad kostar rúta til Akureyrar????????? Sverge 5-Ìsland 0 ÆJ,ÆJ erum vid virkilega svo léglegir í fótbolta,já tad er satt,handboltinn er okkar stolt
Jón og Gunna (IP-tala skráð) 6.6.2007 kl. 20:20
Það voru nú einu sinni 2 flugfélög sem flugu mill Ak og Reyk, Íslandsflug, en það er varla nógu stór markaður fyrir svoleiðis hér. Mamma var t.d. ein í vélinni einhvern tíma með áhöfn.
Annars er rútan enn dýrari en flug sem er fremur sýrt, kostar rúman 7000 kall.
Fótboltinn, gæti ekki verið meira sama...
Anna Þorbjörg Jónasdóttir, 7.6.2007 kl. 08:28
Sma nasty: Ertu buin ad kaupa ther CO2 kvota a www.kolvidur.is til ad bæta fyrir ad vera best i ad menga?
Thorhildur (IP-tala skráð) 7.6.2007 kl. 09:41
Haha... Já þetta er skarplega athugað hjá þér Lóló, að fljúga er ekki til fyrirmyndar fyrir fólk eins og mig sem vill þykjast vera umhverfisvæn. Held samt að ég eigi inni einhvern kvóta þar sem ég hef aldrei á minni ævi átt bíl. Reyndar notaði ég stóran hluta kvótans á rúntárunum en ég held að það sé svo langt síðan að ég sé komin með nokkuð góðan uppsafnaðan mengunarkvóta núna.
P.s. Finnst annars þetta kolviðar dót frekar eitthvað glatað. Lætur fólki líða aðeins betur með að keyra svona mikið. Þetta mun ekkert verða til þess að fólk keyri minna, bara meira ef eitthvað er af því að það friðar samviskuna með því að planta nokkrum trjám sem gerir afar takmarkað gagn.
Anna Þorbjörg Jónasdóttir, 7.6.2007 kl. 09:47
hæ verð að blanda mér í þessa umræðu. Veit ekki hvort þú þekkir til mannsins þórhildur en ég er aðeins buin að vera að læra um Kyoto hérna, og las grein eftir Lohman nokkurn þar sem hann drullar yfir Kyoto og Technocrata sem reyna að finna vísindalegar lausnir á vandamálum sem eru í raun félagsleg og Pólitísk. Hann alla vega gefur algeran skít í þenna blessaða Carbon markað, segir að það sé ekki hægt að að bera það saman að skilja fossil fuels eftir í jörðinni og planta trjám, það er eins og að bera saman epli og appelsínur. Samkvæmt honum höfum við ekki vísindalega þekkingu til að geta haft carbon markað. Raunverulegt hlutverk carbon markaðs er að gera fólki kleyft að menga áfram (og jafnvel meira) á sama tíma og það lítur út fyrir að vera "carbon neutral"! Ég þarf að tékka á þessum kolviði.is en ég vona innilega að þeir séu í það minnsta að planta á íslandi, ef þeir eru að því einhverstaðar í þriðja heiminum þá fyrst fer að hitna í kolunum hjá mér. En alla vega, Lohman, Kúl kall, flettið upp á honum
PS fult af samtökum sem gefa sig út fyrir að planta trjám fyrir það sem maður mengar eru eitthvað dodgy held ég, og útreikningar á því hversu mikið maður hefur mengað, mjög misjafnir, sem sýnir bara hversu fáranlegt það er að halda að maður geti plantað í stað þess að hætta að menga
Sólrún (IP-tala skráð) 7.6.2007 kl. 12:32
Eg er alveg sammala, samtøkin okkar hafa mikid verid ad tala um thetta og øll thau vandamal sem thessu eru tengd.... her ætlar forsætisradherran bara ad reyna ad kaupa sig ut ur thessu øllu saman, thad er ad kaupa kvota i throunarlondum en ekkert (litid) ad gera i eigin gardi thar sem koltvisyringslosun a høfdatolu er margføld midad vid i flestum throunarrikjum....
og einmitt eins og thid nefnid, thetta getur valdid thvi ad frida samvisku folks, en ekki ordid til thess ad folk fari ad hugsa sig tvisar um og reyna ad breyta hegdun sinni i umhverfisvænni og sjalfbærari stefnu...
en thad finnast kerfi sem eru betur en ønnur, og ef thu verdur t.d ad fljuga (eins og eg thegar eg fly heim....) held eg ad thad se mun betra ad madur sponsi thad ad planta nokkrum thrjam i stad thess ad gera ekkert....
svo er lika god sida sem heitir Myclimate.org, thar getur madur stutt verkefni sem eru merkt svokølludum gull standardi....
Thorhildur (IP-tala skráð) 8.6.2007 kl. 07:38
Jamm, það vonda við að planta í þriðja heimunum er að það tekur land af bændum þar, og hvað eiga svo þau ríki að gera, allir vilja nú að þau þróist og iðnvæðist, en ef að vesturlönd eru búin að kaupa upp öll landsvæði og mengunarkvóta af þeim, hvar eiga þá þriðja heims ríki að bæta fyrir sína mengun?
Sólrún (IP-tala skráð) 8.6.2007 kl. 12:01
Eg stid ekki skogrækt i throunarløndum sem lausn, en kolvidur er verkefni thar sem einungis er verid ad rækta trjam a islandi... ad mer skilst a.m.k.
Eg hef einmitt verid a fyrirlestri um verkefni um skogrækt i einhverju landi i Afriku , og thad var einmitt verid ad ræda hversu heimskulegt thad væri... en a islandi held eg ad thad se langt i vid seum buin ad nyta allt landsvædi...
thessu godu verkefni sem eg er ad tala um eru ekki skogræktarverkefni (nema tha thetta islenska...) en verkefni eins og betri nytni i eldavelum sem nota kol eda ad leggja nidur diselrafstødvar og setja endurnytanlega hreina orku i stadinn...
Thorhildur (IP-tala skráð) 12.6.2007 kl. 17:42
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.