Í dag er víst alþjóðlegur umhverfisdagur. Ég hef nú svo sem ekki heyrt mikið um hann áður enda er ég nokkuð nýorðin umhverfisfasisti. Íslendingar halda ekki sérstaklega upp á daginn, spurning hvort forráðamönnum okkar finnst við ekki menga nóg til að vekja sérstaka athygli á degi sem þessum.
Íslendingar monta sig oft á þegar við á að við séum best í hinu og þessu reiknað út frá höfðatölu. Ég hef hins vegar aldrei séð tölur um það hvað við mengum mikið miðað við þessa tölu. Ég er viss um að við myndum skora hátt þar, vera "best" í að menga. En þegar svoleiðis leiðinlegar tölur eru annars vegar vill enginn notast við heimskulega höfðatöluútreikninga, þá viljum við heldur notast við heildartölur, óháð íbúafjölda. Svoleiðistölur eru okkur aldeilis í vil. Höfðatölureikningar teljast bara góðir og gildir þegar sagt er frá því hverjir drekka mest kók og svoleiðis skemmtilegt.
![]() |
Alþjóða umhverfisdagurinn er í dag |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.