Nú þegar það er ný ríkisstjórn tekin til starfa eftir allt of langa setu D og B þarf maður að fara að venja sig við öðruvísi þingræðum. Allt í einu eru þeir sem áður vörðu störf stjórnarinnar með krafti og klóm farnir að rakka hana niður og þeir sem sáu svart þegar minnst var á ríkisstjórnina finnst nú allt sem hún gerir frábært. Mér finnst eitthvað sérlega rangt við það að sjá t.d. Valgerði Sverrisdóttur tala um svikin loforð samgönguráðherra um Vaðlaheiðargöng. Allt í einu eru þingmenn B farnir að sjá allt að hjá ríkisstjórninni en S farið að verja allan skítinn, t.d. Ingibjörg Sólrún að réttlæta stuðning Íslands við Íraksstríð. Mér finnst þetta allt saman fremur súralískt. Gott að hafa þó alltaf D í hlutverki almættisins og V í píslarvottsrullunni annars vissi maður ekki í hvorn fótinn ætti að stíga.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.