Djöful er pirrandi þegar maður vaknar fyrr en venjulega til að gera sig fína og slétta á sér hárið, fara svo út og lenda þar í rigningu og roki og koma til vinnu með beyglaðari lubba en fyrir sléttingu. Skil ekki hvernig maður nennir að standa í þessu að reyna að vera pæja.
Athugasemdir
Já, er rok og rigning í Reykjavík.
Er ekki alveg vid hæfi ad tú fáir tér sjóhatt.
Tetta er sjóhatturinn minn,en ekki tinn................(minnir mig á Øglu) En hafdu gódann dag elskan 
Frída frænka (IP-tala skráð) 5.6.2007 kl. 09:26
Jamm, rok og rigning í Reykjavík, þvílík klisja. Hef verið að íhuga að fá mér svona plast slæðu á hausinn eins og gamlar konur eru stundum með, tja eða sjóhatt, þó ég ef reyndar notagildi hans við slíkar aðstæður
Anna Þorbjörg Jónasdóttir, 5.6.2007 kl. 09:30
Ein rökin til viðbótar ágætis einkabílsins.
Bjarki Þór Baldvinsson (IP-tala skráð) 5.6.2007 kl. 09:37
Væri ekki heldur gróft að kaupa sér bíl til að geta verið með slétt hár?
Anna Þorbjörg Jónasdóttir, 5.6.2007 kl. 09:58
Fer eftir forgangsröðun þinni. Málamiðlunin væri reyndar að ná að "púlla" að vera sexí og pæjuleg holdvot. Það eru fordæmi fyrir því að slíkt "lúk" komi vel út. Eins hefur Sigurbjörn bent á að konur á hjólum séu mjög eggjandi. Því þarf ekki nema treggáfaða menn eins og mig til að benda á að sameining blauta lúksins og reiðhjólamennskunnar gæti verið mögnuð tvenna: Wet and wild on a bike.
Bjarki Þór Baldvinsson (IP-tala skráð) 5.6.2007 kl. 10:29
Bjarki, þú varst mig næstum búin að lifandi drepa. Var með kúnna að fylla út bótaumsókn beint hinum megin við skrifborðið þegar ég las þetta áhugaverða komment frá þér og var eflaust mjög skrítin í framan að fara ekki að hlæja. Hefði ekki verið gott að hlæja framan í fólk sem er að sækja um bætur.
Já ég vona að ég skili blauta lúkkinu og reiðhjólamennskunni vel frá mér, ekki amalegt að vera wet and wild on a bike...
Anna Þorbjörg Jónasdóttir, 5.6.2007 kl. 11:19
Haha ég sé þig fyrir mér Anna í slow motion öll blaut og hot á hjólinu þínu ;) Bjarki you bad boy!
Kristrún (IP-tala skráð) 5.6.2007 kl. 14:53
ha ég? hvenær var ég að segja þetta? þetta er reyndaralveg eitthvað sem ég gæti látið hafa eftir mér.... hættið að tala um mig svona að mér fjarstöddum. ég fellii mig illa við það...hm:)
Sigurbjörn (IP-tala skráð) 5.6.2007 kl. 16:22
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.