Banna meira

börnÞar sem nú hefur verið stigið það skref að banna sérstaka hegðun á kaffihúsum, þ.e. að reykja, hef ég verið að íhuga ýmislegt annað sem hægt væri að banna í kjölfarið.  Allt auðvitað í því skyni að vernda rétt vissra einstaklinga.

Nú er ég barnlaus kona og hef ekkert sérstaklega gaman að háværum, frekum ókunnugum börnum.  Þrátt fyrir það þarf ég oft að sætta mig við það að þegar ég ætla að fara á kaffihús í því skyni að eiga þar rólega stund, að allt um kring eru vælandi börn sem mér þykir af frústrerandi.  

Það er hins vegar svo að aldrei má benda á að hegðun barna á kaffihúsum sé óviðunandi og truflandi fyrir aðra gesti.  Allir eiga jú að elska litlu sakleysingjana skilyrðislaust.  Veit ég til þess að þegar foreldrar eru áminntir um að hafa hemil á börnum sínum móðgast þeir jafnvel svo mikð að þeir storma út í fússi.

Ekki vil ég þó gerast svo gróf að banna alfarið börn á kaffihúsum en mér þætti það ósköp eðlilegt að til væru staðir þar sem maður getur farið á þess fullviss að verða ekki fyrir truflunum vegna frekjukasts einhvers sakleysingjans. 

Er réttur minn til þess eitthvað minni en þeirra sem hatast við reykingar?  Ég er ekki frá því að sá pirringur sem myndast innra með mér þegar ég lendi í miklum truflunum af hendi barnafólks hafi töluverð áhrif á heilsu mína svipað og óbeinar reykingar gera.  En geðheilsan hefur svo sem aldrei verið metin til jafns við hina líkamlegu.  En það voru alla vega til reyklaus kaffihús áður en ég hef aldrei rekist á barnlaust kaffihús. 

Hef sömuleiðis fleiri hugmyndir um boð og bönn á kaffihúsum;  gelgjulaus kaffihús (flissandi og hávært lið), gamalmennalaus kaffihús (það tekur ár og öld fyrir þau að telja klinkið fyrir kaffibollanum), túristalaus kaffihús (þeir lykta oft illa undan öllu goretexinu) og svo mætti áfram telja. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Já bara banna og banna. Eins og áður hefur komið fram þá er ég alveg hlint alla vega bönnum. Bann fyrir suma er frelsi fyrir aðra!

Sólrún (IP-tala skráð) 3.6.2007 kl. 18:18

2 identicon

Ertu s.s. að bera saman jafn eðlilegan hlut eins og að eignast börn og taka þau endrum og sinnum með sér á kaffihús og þeirri eymdarlegu athöfn að sjúga ofan í sig blásýru og arsenik auk annara eiturefna og spúa því svo yfir mann á næsta borði?

Ég geri mér grein fyrir sarcasmanum í þessari færslu hjá þér Anna en finnst dæmið sem þú tekur heldur langsótt

Vona annars að allt sé gott að frétta af þér og þínum.

 Kv,

Jón Gunnar.

Jón Gunnar (IP-tala skráð) 4.6.2007 kl. 00:05

3 identicon

Til að summa þetta upp orðar Allý Rósa hanns Dodda frænda þetta mjög smekklega á bloggsíðunni sinni:

"þetta snýst alls ekki um boð og bönn heldur rétt hinna reyklausu.  Við sem ekki reykjum gerum engum neitt með nærveru okkar en erum bara vinsamlega að biðja um að verða ekki fyrir skaða með því einu að flippa svolítið og detta inn á kaffihús í einn Latté!"

"Hlutir sem eru algjörlega off: Reykingar!"

Jon Gunnar (IP-tala skráð) 4.6.2007 kl. 00:28

4 Smámynd: Anna Þorbjörg Jónasdóttir

Jón Gunnar:  Þetta snýst e.t.v. líka um rétt okkar barnlausu að eiga afslappað stund á kaffihúsi án þess að verða fyrir því mikla áreiti sem sum börn valda.  Mér finnst þetta alls ekki fáránleg hugmynd og í raun skrítið að ekki séu til einhverjir staðir þar sem börn eru ekki velkomin.  Veitingahúsaeigendur réðu því auðvitað sjálfir en ekki Ríkið.  Mig langar kannski líka að flippa og detta inn á kaffihús í einn Latté án þess að hafa barnagrenjur í kringum um mig.

Ég veit ekki hvort ég þarf að taka fram að ég hata ekkert börn eða neitt þannig, en geri það þó til að fá ekki einhverjar athugasemdir um hvað ég er vond manneskja að finnast ekki öll börn yndisleg og finnast grenjur krúttlegar

Anna Þorbjörg Jónasdóttir, 4.6.2007 kl. 08:29

5 identicon

Tad fer ekkert eins mikid í tagarnar á mér og foreldrar sem hafa ekki mátt til ad thagga nidur í børnum sínum á almenningsfæri,hvort sem er á veitingastødum eda búdum.En í dag má bara ekki banna børnum neitt og taug komast upp med alla frekju.Vid fórum mikid med dóttir okkar út ad borda er hún var lítil og var hún bara prúd í alla stadi,en ég er ansi mikid viss um ad ég hedfi stórmódgast ef okkur hefdi verid meinadur adgangur

á veitingastad med hana. Er ekki hlynt tessum bønnum,einu sinni var kvartad yfir ad fattlad fólk hér í Dk trubladi adra gesti á veitingstødum og fólk missti allamatarlist og voru sumir á tví ad tad ætti ad vera sér stadir fyrir SVONA fólk.Sem betur fer tók fólkid vid sér og tetta var kvedid í kútinn

Frída frænka (IP-tala skráð) 4.6.2007 kl. 10:03

6 Smámynd: Anna Þorbjörg Jónasdóttir

Já Maja, hún Sigga hefur auðvitað alltaf verið sem lítið ljós og til fyrirmyndar og er enn auðvitað.  Já, maður er komin á svolítið fasíska braut svona að vilja banna allt en finnst samt allt í lagi að fólk hugsi aðeins um svona hluti því enginn þorir jú að tala um eitthvað svona því þá getur maður lent í ofsóknum fyrir barnahatur og enginn vill það nú.

En þegar þú nefnir dæmið um að fólk hafi í alvöru viljað banna fatlaða á veitingastöðum sér maður hvað fólk er eitthvað orðið brenglað og ómanneskjulegt.  Ætti því kannski að reyna að hemja mig í barnapirringnum til að falla ekki í sömu gryfju.  Leyfið börnunum að koma til mín...

Anna Þorbjörg Jónasdóttir, 4.6.2007 kl. 10:25

7 identicon

Vó allt að gerast og ég orðin bitbein í hatrömmum deildum

En um börnin og kaffihúsin hef ég það að segja að maður þarf líka að hugsa um krakkaangana og krakkar sem orga og grenja á kaffihúsum hafa mjög líklega ekki þolinmæði til að vera þar á annað borð, sem er vel skiljanlegt. Þannig að það er jafn mikið fyrir krakkaormana gert og fólk eins og Önnu að skilja þau eftir heima. Sjálf nenni ég ekki að hafa krakkana með mér ef ég á annað borð ákveð að flippa dálítið og detta inn á kaffihús í einn Latté. En hvort það eru sömu forsendur fyrir að banna krakka og reykingar?? Er það??

Allý (IP-tala skráð) 4.6.2007 kl. 12:55

8 identicon

Og þessi deild sem ég er að tala um í fleirtölu átti að vera deila í fleirtölu

Allý (IP-tala skráð) 4.6.2007 kl. 12:57

9 Smámynd: Anna Þorbjörg Jónasdóttir

Allý:  Það hlýtur að vera ákveðin viðurkenning á bloggi þínu ef það er byrjað að vitna í það í slíkum deilum sem hér eiga sér stað.

Ég er alveg sammála þér um það að krakkagreyin sem eru dregin á kaffihús og hangsast þar vælandi er álíka mikil vorkun og mér sem þarf að hlusta á þau.  Fólk virðist stundum ekkert sérstaklega spennt fyrir að sinna eigin börnum.

Forsendur eru kannski aðeins öðruvísi en reykingarnar en mér finnst bara svo gaman að vera á móti öllum; hef verið sökuð um að vera haldin andstöðuþrjóskuröskun á háu stigi og gengst ég svo sem vel við þeirri greiningu

Anna Þorbjörg Jónasdóttir, 4.6.2007 kl. 13:02

10 identicon

Það er reyndar eitt kaffihús hérna í Danmörku sem fékk nóg af börnum og bannaði konum að mjólka börnin sín hjá þeim. Fólki fannst þetta ósmekklegt og var þreytt á barnagráti, ælum og kúkableyjum og hætti að koma á kaffihúsið. Svo eru að spretta upp kaffihús sérstaklega ætluð börnum og mömmum með börn á brjósti sem er frábært og jákvæð leið við að leysa vandann. Ég elska börn meira en allt í heiminum og langar að eignast haug af þeim en meika engann veginn að hlusta á þau öskra og gráta og finnst algjör dónaskapaur þegar foreldrar eru með börnin á veitinga og kaffihúsum í þannig ástandi, börnin geta jú bara tjáð sig á þennan hátt og eru að segja foreldrum sínum að þau vilji heim. ég er sammála þér anna að fólk nennir stundum ekkert að sinna börnunum sínum en það fólk eyðileggur náttúrulega bara fyrir þeim sem fara allt með börnin sín án þess að valda vandræðum. Ég hef til dæmis setið á kaffihúsi með litlum einhverfum strák og það var ekki neitt vandamál.

Kristrún (IP-tala skráð) 4.6.2007 kl. 13:33

11 identicon

Eg veit ekki hvort eg a ad thora ad blanda mer inn i thetta thar sem eg hef einmitt verid ad tala svo hlylega um hvad børn eru alltaf velkomin a Islandi. Her finnst mer folk hafa minni tholimædi gagnvart børnum og horfir hvøssum augum a mædur sem dirfast ad vera med børn sem grenja innan um annad folk... eg segi alltaf a Islandi er folk miklu tholimodara gagnvart børnum, thar eru thau velkomin ut um allt... ;o)

thetta er liklega vegna thess ad ef eg eignast børn, langar mig ekki til thess ad thurfa ad vera heima allann daginn (fyrstu 6.manudina...)og geta ekkert farid vegna thess ad barnid mitt er ekki velkomid... ungabørnum er a.m.k alveg sama hvar thau eru svo lengi sem thau geta fengid ad sofa og borda...

og svo var eg einmitt lika ad hugsa um hvad reikingarbannid er gott fyrir ny bakada foreldra og olettar konur! Sem thurfa ekki lengur ad hætta vid ad fara a hitt og thetta kaffihusid vegna thess ad thar se svo mikil heilsuspillandi svæla...

eg er hinsvegar alveg sammala ther Anna thetta getur verid mjøg threytandi en eg vil semsagt sjalf geta verid threytandi thegar (ef) thar ad kemur ad eg verdi foreldri...

Thorhildur (IP-tala skráð) 4.6.2007 kl. 15:43

12 identicon

Ágæt umræða og greinilegt að það eru allir að fylgjast með þínu ágæta bloggi Jónasardóttir. Ég ætti kannski að druslast til að fara skrifa eitthvað af viti á bloggið mitt í stað þess að pára eintóma steypu og birta ekkert nema einhverjar rassa og brjóstamyndir en talandi um brjóst... ég get tekið undir í sambandi við börn og kaffihús að mér finnst það að koma með hvítvoðunga á kaffihús stundum dálítið óþægilegt sér í lagi þegar þeir frá brjóst frá mæðrum sínum á næsta borði við mig eins og skeði um daginn inni á Café Paris þegar eiginkona frægs söngvara frá Akureyri vippaði út brjósti á stærð við Hafnarfjörð og fór að gefa nýjasta afkvæmi þeirra hjóna svo nálægt mér og með þvílíkum atgangi að það lá við að mjólkurfroðan úr munnvikum barnsins slettist ofan á froðuna á Latté-inu mínu. Ég sat út í horni á París og átti mér engrar undankomu auðið og fannst blygðunnarkennd minni vera stórlega misboðið en nú er ég orðinn frekar selektívur. Hmm... Bannað að koma með börn yngri en 1 árs á kaffihús? Díll?

Jón Gunnar Benjamínsson (IP-tala skráð) 7.6.2007 kl. 10:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband