Færsluflokkur: Bloggar
Hann litli bróðir minn, hann Egill Logi, á afmæli í dag. Hann er reyndar löngu hættur að vera lítill og töluvert langt síðan hann varð tveimur eða ekki þremur höfðum hærri en ég. Í dag er hann orðinn fullorðinn og 18 ára.
Egill er svo heppinn að eiga þrjár eldri systur. Ég man það þegar hann var í maganum á mömmu og læknirinn sagði að hann ætti að verða stelpa. Það þótti mér nú skemmtilegt. Að eignast litla systur fannst mér töluvert meira spennandi en að eignast lítinn bróður. Þegar út kom strákur glöddust allir, nema ég. Það kom síðar í ljós að litlir strákar eru líka skemmtilegir og það var nú ágætt að brjóta þetta stelpnaveldi aðeins upp. Ég held líka að Egill sé heppinn. Því það gerir hverjum karlmanni gott að alast upp með systrum. Við höfum kennt honum vel.
Til hamingju með daginn litli bró!
Bloggar | 5.10.2007 | 14:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Bloggar | 5.10.2007 | 09:36 (breytt kl. 09:37) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Held að það sé syndaflóð á leiðinni sem er frekar ósanngjarnt fyrir mig að lenda í þar sem ég hef ekkert gert af mér.
HATA þessa helvítis rigningu!
Bloggar | 5.10.2007 | 09:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Hringdi símtal áðan innan um vinnufélagana sem hefur eflaust hljómað áhugavert fyrir þá sem á hlýddu. Þeir heyrðu sem sé aðeins mína hlið á málinu.
Ég; Ég ætlaði að heyra hvað það kostar að gera hjá ykkur ófrjósemisaðgerð?
------
Ég; Þarf eitthvað að panta þetta með löngum fyrirvara?
------
Ég; Heyrðu ég hringi þá bara síðar, takk fyrir.
Á sem sé kött á gelgjunni sem brátt fær kynhvöt. Hef ekki tekið ákvörðun um að bjarga heiminum frá fjölgun minni, þó e.t.v. væri það þjóðráð.
Bloggar | 3.10.2007 | 16:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Nú gengur þetta ekki lengur. Nú verð ég að fara í Blóðbankann og gefa smá slettu af blóði. Er búin að humma þetta af mér allt of lengi. Hef tvisvar reynt en ekki getað. Í fyrra skiptið var ég soddan písl og of blóðlítil og í seinna skiptið hafði ég verið á Indlandi og þótti eitthvað menguð. Ég varð svo móðguð í seinna skiptið því þeir voru þá þegar búnir að taka blóðprufu áður en hægt var að drulla því út úr sér að ferðalangar væru ekki boðlegir blóðgjafar. Er ekki spennt fyrir sprautum og fannst þetta því óþarfa pína.
En nú er hins vegar engin afsökun lengur. Nú læt ég pumpa úr mér hvern blóðdroða sem ég á aflögu. Hvet alla að gera slíkt hið sama, held að það sé alveg stungunar virði.
Bloggar | 2.10.2007 | 10:28 (breytt kl. 10:37) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Hver ók fram hjá mér á hvítum plebbajeppa í gærkvöldi, flautaði og vinkaði?
Við systur vorum í smá göngutúr þegar það er flautað á okkur af þessum bíl. Ekki þekki ég neinn sem ekur slíkri glæsibifreið svo ég gerði ráð fyrir að þetta væru einhverjir gaurar að flauta á okkur því þeim finndist við hot. Ljái þeim hver sem vill, hugsaði ég með mér. Svo fer bifreiðin auka hring á hringtorgi sem þarna er til þess eins og geta aftur flautað og þá sá ég einhver var að vinnka en ekki hver. Í brotabrot var mér nokkuð brugðið og hélt að þarna væru kannski einhverjir ótýndir glæpamenn á ferð, enda ekki langt frá miðbænum, þar sem glæpamennirnar eiga heima. En held ekki að glæponar vinnki og haldi svo sína leið.
Spurningin er því, hver var þetta eiginlega?
Bloggar | 1.10.2007 | 13:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Bloggletin að drepa mig sem og þetta viðbjóðslega veður. Svo viðbjóðslegt er það að hjólhesturinn var skilinn eftir heima og þjónusta Strætó notuð. Sú þjónusta er ekki góð fyrir fólk eins og mig sem líður illa þegar ég held ég muni koma of seint. Strætó er ekki stundvíst farartæki. Ef ég held áfram að nota mér þá þjónustu er ég þess fullviss að ég muni þróa með mér magasár og almenna taugaveiklun.
Segjum þetta gott í bili.
Bloggar | 27.9.2007 | 16:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Allt fór á hvolf í gær yfir þessum fíkniefnum í skútunni á Fáskrúðsfirði. Fréttatímar beggja stöðva notuðu hálfan þáttinn í þetta mál. Skemmtilegasta innslagið þótti mér þó viðtölin við heimamenn. Spurðir voru um 6 manns hvernig þeim hafi orðið um þegar þau heyrðu af þessu. Veit ekki hvort til séu einhver góð svör við svona spurningu en fannst fyndið þegar míkrafóninum var troðið upp í fólk sem sagði eitthvað; mér var bara voða brugðið sko; þetta er alveg svakalegt; þetta er nú ekki góð kynning fyrir staðinn; og börnin hlaupandi hérna um og fleiri góðir punktar. Þeir sem heyrðu vita hvað ég meina. Veit svo sem ekki hvað börnunum hefði átt að verða meint af, held ekkert skútumennirnir hafi ætlað að selja þeim góssið. Né held ég að Fáskrúðsfirði verði eitthvað sérlega meint af þessu, held ekkert að ef einhver ætlar í ferðalag þangað að hann hugsi með sér; nei, þar er allt fljótandi í fíkniefnum og dópsalar á hverju horni.
En svo sem gaman að því að fá smá spennandi fréttir annað slagið, svona til að hressa upp á fréttatímana. Alla vega skemmtilegri fréttir heldur en Grímseyjarferjuhelvítið.
Bloggar | 21.9.2007 | 08:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Nú ætla ég aðeins að tuða. Er ótrúlega hneiksluð og pirruð yfir þeirri ömurlegu hugmynd Björgólfs eldri og Björgólfs jr. að reisa enn eina verslunarmiðstöðina í Reykjavík og það í miðbænum. Mér finnst alltaf verið að ræða um hvað þurfi að fá meira líf í miðbæinn svona eins og í útlöndum. Hef nú komið til nokkurra útlanda og þar er einmitt miðbærinn oftast með göngugötu og fullt af búðum og kaffihúsum en ekki eitt hús þar sem öllu er hrúgað á sama stað. Ég hélt líka að það væru flestir sammála um það að miðbær Reykjavíkur hefði yfir sér sérstakan sjarma með öllum gömlu og litlu húsunum. Svona lítil, sæt kofabyggð. Nú vilja þeir millafeðgar rífa fullt af húsum til að reisa enn einn klumpinn svo úthverfafólkið nenni að koma niður í bæ og eyða þar fullt af peningum.
Fyrir utan hvað þetta mun verða ljótt og úthverfalegt þá finnst mér líka persónulega frekar leiðinlegt að fara í verslunarmiðstöðvar. Hef rætt þetta við marga og flestir eru mér sammála að þeim líði ekkert sérstaklega vel í t.d. Kringlunni. Maður þarf að vera sérstaklega vel stemmdur til að missa ekki vitið innan um allt þetta fólk sem treðst áfram í einhverri verslunarvímu.
Kannski er ég heldur íhaldssöm að þessu leyti að langa að halda í það sem fyrir er en mér finnst alveg óþarfi að gera alla hluta Reykjavíkur nákvæmlega eins. Steypuklumparnir eru ágætir í sjálfu sér en það er líka nauðsynlegt að leyfa bárujárnskofunum að njóta sín þar sem þeir eru svo hægt sé að átta sig almennilega á því hvort maður sér staddur niðri í miðbæ eða Smárahverfinu.
Bloggar | 20.9.2007 | 09:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (17)
Það verður að segjast að ekki fer mikið fyrir heilsusamlegu líferni á mínu heimili. Því var það hressandi þegar við systur, Stína og Palli fórum í TBR og fórum í badminton í gærkvöldi. Eins og áður hefur hér komið fram er það eina íþróttin sem ég er ekki sjúklega léleg í. Því var gaman að smassa í Stínu og svona og þurfa að kenna þeim skötuhjúum reglurnar. Dagný litla syss er einnig fyrrum badmintonstjarna (eða svona þið vitið, æft og þannig) og því vorum við gott badminton kombó. Markmið mitt er því að spila bara við fólk sem er lélegra en ég, það er svo gott fyrir egóið. Skítt með það að manni fari ekkert fram. Þetta er eitthvað sem meiri áhersla ætti að vera í ungmennastarfinu, svona til að peppa liðið upp í stað þess að brjóta alla niður!
Bloggar | 19.9.2007 | 12:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)